RE/MAX Ísland logo
Skráð 1. sept. 2026
Söluyfirlit

Bleikjukvísl 2

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
420.9 m2
10 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
219.000.000 kr.
Fermetraverð
520.314 kr./m2
Fasteignamat
203.050.000 kr.
Brunabótamat
204.950.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Hilmar Arnarson
Hilmar Arnarson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1984
Þvottahús
Garður
Margir inngangar
Fasteignanúmer
2043786
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Brotið gler í einum af tveimur gluggum á baðherbergi aðalhæðar.
Skemmdir á parketi aðalhæðar.
Innihurðar margar hverjar illa farnar og mögulega komin þörf á að skipta eða láta laga.
Þarf að skoða betur þak á garðskála en þar hefur lekið inn.
 
Hilmar Arnarson, löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX, kynnir einstaklega glæsilegt og vandað 420,9 fm steinsteypt einbýlishús byggt árið 1984 og teiknað af Kjartani Sveinssyni byggingatæknifræðingiá tveimur hæðum við Bleikjukvísl 2 í Reykjavík. Eignin stendur á eftirsóttum stað í Ártúnsholti og nýtur stórbrotins útsýnis yfir borgina, Esjuna og Faxaflóa. 

Hér er á ferðinni eign sem sameinar hönnun, gæði og fjölbreytta nýtingarmöguleika á einstakan hátt. 
Aðalhæð hússins er 197,3 fm og er aðkoma að henni einstaklega góð frá efri götu. Þar er stórt hellulagt bílaplan með stæði fyrir allt að fjóra bíla auk innkeyrslu í tvöfaldan bílskúr með rafdrifnum hurðum. Gengið er inn um hlið frá bílastæði en þar er snyrtilegur suðaustur garður ásamt hellulagðri verönd og sólskála sem tengir saman hús og bílskúr á skemmtilegan hátt.

Á neðri hæð eru tvö aðskilin íbúðarrými. Annars vegar rúmgóð um 90 fm tveggja herbergja íbúð með stórum aflokuðum viðarpalli, þar sem auðvelt er að útbúa annað svefnherbergi, og hins vegar stúdíóíbúð. Báðar íbúðirnar eru með sérinngangi og sérbílastæði.

Eign sem býður upp á meira en fermetra. Bleikjukvísl 2 er reisulegt fjölskylduhús þar sem gæði, útsýni og sveigjanlegt skipulag fara saman. Hvort sem draumurinn er að búa rúmgott, skapa tekjur af hluta eignarinnar eða hafa fjölskylduna nær sér, þá býður þessi eign upp á einstaka möguleika.

Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson löggiltur fasteignasali hilmar@remax.is sími 823-3673.
Áhugasamir endilega bóka skoðun.


Helstu upplýsingar
420,9 fm einbýlishús
197,3 fm aðalhæð
54,6 fm tvöfaldur bílskúr
Tvær aukaíbúðir á neðri hæð
Sérinngangur og sérbílastæði við báðar aukaíbúðir
Stór og björt stofa með stórbrotnu útsýni yfir borgina, Esjuna og Faxaflóa
Endurnýjað sérsmíðað eldhús með granítborðplötum
Þrjú rúmgóð svefnherbergi á aðalhæð
Stór walk-in sturta á aðalbaðherbergi
Stór aflokaður garður í suð-austur og viðarpallur sem snýr til norðurs
Garðskáli með mikla möguleika.
Góð aðkoma og bílastæði fyrir 3–4 bíla að ofan
Töluverðar endurbætur á undanförnum árum

Aðalhæð
Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og góðu fatahengi með skúffum. Inn af forstofu er smekklegt gestasalerni sem hefur verið endurnýjað. Flísalagt í hólf og gólf.
Stofa og borðstofa mynda stórt og bjart alrými með stórum gluggum og einstöku útsýni yfir borgina, Esjuna og hafið. Rýmið er opið og vel tengt eldhúsinu og skapar afar skemmtilegt fjölskyldurými. Parket á gólfi.
Eldhúsið var endurnýjað árið 2016 og er með fallegri sérsmíðaðri innréttingu frá Grindinni í Grindavík. Granítborðplötur, innbyggð uppþvottavél, ofn í vinnuhæð og gott skápa- og vinnupláss setja fallegan svip á rýmið. Við gluggann er borðkrókur þar sem nýtur sama fallega útsýnis og úr stofunni. Inn af eldhúsi er rúmgott búr með hirslum. Flísar á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll rúmgóð. Hjónaherbergið er með útgengi út í garð en hin tvö henta vel sem barnaherbergi eða skrifstofur. Parket á gólfi.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað og er smekklega innréttað með stórri walk-in sturtu, innfelldum blöndunartækjum og góðu rými.
Tengibygging (laufskáli/garðskáli) tengir aðalhæðina við bílskúrinn og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Þarna er um 20 fm rými að ræða sem hægt væri að nýta sem indoor/outdoor rými og setja upp kamínu, saunu ofl. eða eins konar betri stofu sem snýr þá út í garðinn.
Neðst í stigahúsinu er svo þvottaaðstaða. Þaðan er einnig mögulegt að tengja stúdíóíbúðina við aðalhæðina ef nýr eigandi kýs það.

Bílskúr og lóð
Fyrir framan húsið er stórt hellulagt bílaplan með stæði fyrir 3–4 bíla.
Bílskúrinn er 54,6 fm, tvöfaldur og með rafmagni, heitu og köldu vatni.
Lóðin er stór og vel nýtt með aflokuðum garði, grasflöt og hellulögðum svæðum sem skapa gott skjól og skemmtilegt útisvæði.

Neðri hæð
Stúdíóíbúð
Stúdíóíbúðin var standsett árið 2016 og skiptist í opið alrými með svefnaðstöðu og eldhúskrók ásamt rúmgóðu baðherbergi með sturtu.
Íbúðin hefur sérinngang og sérbílastæði.
Um 90 fm tveggja herbergja íbúð
Rúmgóð og vel skipulögð íbúð sem var endurnýjuð árið 2016.
Komið er inn í forstofu/hol og þaðan inn í mjög rúmgóða stofu. Auðvelt er að útbúa annað svefnherbergi án þess að skerða rýmið verulega.
Svefnherbergið er stórt og bjart. Eldhúsið er rúmgott með borðkrók og inn af því er þvottahús og geymsla.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað með stórri opinni sturtu, upphengdu salerni og fallegri innréttingu.
Frá íbúðinni er útgengt á stóran aflokaðan viðarpall. Sérinngangur og sérbílastæði fylgja íbúðinni.

Endurbætur síðustu ára að sögn seljanda
2023 Ný gólfefni lögð á aðalhæð.
2021 Húsið málað að utan. Þakið málað.
2016 Neðri hæð endurnýjuð að stórum hluta.Stór pallur smíðaður. Eldhús á efri og neðri hæð endurnýjuð.
Sérsmíðað eldhús frá Grindinni í Grindavík sett upp á aðalhæð með granítborðplötum.
Öll baðherbergi endurnýjuð.
Gestasalerni á aðalhæð endurnýjað.

Bleikjukvísl 2 er staðsett í rótgrónu og góðu fjölskylduhverfi í Ártúnsholtinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, grunnskóla og leikskóla ásamt því að frábærar göngu og hjólaleiðir eru í næsta nágrenni.

ATH. Notast var við aðstoð gervigreindar á einstaka myndum til að sýna hvernig rýmið lítur út án húsgagna og/eða möguleika sem eignin býður uppá.


Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson löggiltur fasteignasali hilmar@remax.is sími 823-3673.
Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Byggt 1984
54.6 m2
Fasteignanúmer
2043786
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
24.200.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin