Hilmar Arnarson er löggiltur fasteignasali og með B.Sc. í verkfræði.
Í starfi mínu legg ég mikla áherslu á persónulega þjónustu, heiðarleg samskipti og að vera til staðar fyrir viðskiptavini mína í gegnum allt söluferlið. Markmiðið er einfalt – að ná sem bestum árangri fyrir viðskiptavininn og gera ferlið eins gott og öruggt og mögulegt er.
Utan fasteignasölunnar hefur CrossFit verið stór hluti af mínu lífi. Ég hef stundað Crossfit um árabil og keppti meðal annars á heimsleikunum í CrossFit árin 2016 og 2017. Íþróttabakgrunnurinn hefur kennt mér aga, metnað og að árangur næst með góðum undirbúningi og eftirfylgni – sömu gildi og ég legg upp með í fasteignasölunni.