RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali kynna: Fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð með aukinni lofthæð og góðri verönd á jarðhæð í nýlegu fjölbýlishúsi við Hringhamar 7 í Hafnarfirði.
Nýleg íbúð, þar sem fermetrar eignar eru allir innan íbúðar skv. HMS. Eign sem hægt er að mæla með!Hér er hægt að kíkja í 3D heimsókn með því að smella á þennan hlekk!Allar frekari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 820-0490 eða á netfanginu gudrun@remax.is.
Nánari lýsing eignar: Forstofa með góðum fataskáp.
Geymsla er innaf anddyri.
Hjónaherbergi, með fataskápum.
Herbergi II, rúmgott með fataskápum.
Stofa, borðstofa og eldhús í rúmgóðu alrými með útgengi út á skjólgóðan suður pall.
Eldhús með ofn í vinnuhæð, helluborði m/viftu yfir og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Baðherbergi með gólfhita, walk-in sturtu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Frekari upplýsingar:- Innréttingar og fataskápar eru frá Arens.
- Gólfefni íbúðarinnar eru harðparket og flísar í votrýmum.
- Leikvöllur á sameignlegri lóð.
- Húsfélagið eignar er að leita eftir tilboðum vegna rafmagns hleðslustöðvar á lóð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Virkilega góð staðsetning í nýlegu hverfi við Hamranes þar sem stutt er í alla helstu þjónustu en þar má nefna grunn- og leikskóla, Ásvallalaug, íþróttamiðstöð Hauka og falleg náttúrusvæði. Eign sem hægt er að mæla með í góðu og ört vaxandi hverfi.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490, gudrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.