RE/MAX Ísland logo
Opið hús:08. apríl kl 17:30-18:00
Skráð 30. mars 2026
Söluyfirlit

Hraunbær 134

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
120.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
78.400.000 kr.
Fermetraverð
652.789 kr./m2
Fasteignamat
75.200.000 kr.
Brunabótamat
61.000.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1968
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2045119
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Gler og gler listar hefur verið endurnýjað að mestu leiti
Þak
Upprunalegt, en hefur fengið viðhald
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, tvennar svalir
Upphitun
Hefðbundin hitaveita, en gólfhiti inn á baðherbergi
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:

Vel skipulögð og mikið endurnýjuð fimm herbergja íbúð á efstu hæð í vel viðhaldnu fjölbýli í Hraunbæ 134, 110 Reykjavík.

Íbúðin, sem er 120,1 m², er með fjórum svefnherbergjum og vel skipulögðum rýmum þar sem allar innréttingar, gólfefni og baðherbergi hafa verið endurnýjuð á smekklegan hátt. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með útgengi á svalir. Eldhúsið er vel skipulagt og tengist þvottahúsi og búri sem eykur virkni og þægindi. Svefnherbergin eru fjögur eru öll rúmgóð. Sameign er snyrtileg og hefur nýlega verið tekin í gegn með nýjum gólfefnum og málningu. Eigninni fylgir sér merkt bílastæði á lóð með rafhleðslustaur uppkominn en án hleðslustöðvar.

Skipulag eignarinnar: Íbúðin er á efstu hæð hússins og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, búr, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Eignin er öll með nýlegu harðparketi á gólfum, fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt.

Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is


Nánari lýsing: 
Forstofa og gangur: Er með nýlegu harðparketi á gólfi og fataskápum, opið þaðan inn að öðrum rýmum íbúðar.
Eldhús: Endurnýjað eldhús með svörtum innréttingum og svörtum borðplötum. Á milli efri og neðri skápa er baklýst glerplata með rósamynstri sem setur skemmtilegan svip á rýmið. Innbyggður ofn, ísskápur og uppþvottavél ásamt helluborði, viftu og vask. Gluggar veita góða birtu inn.
Þvottahús og búr: Inn af eldhúsi er sér þvottahús með dökkum innréttingum, vask og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi er á rýminu. Sér búr er einnig til staðar og tengist þvottahúsinu.
Stofa og borðstofa: Bjart og opið alrými með nýlegu harðparketi á gólfi. Gluggar veitir mikla birtu inn og þaðan er útgengi út á svalir. Stofan er með innfelldri sjónvarpsinnréttingu. Í borðstofu er rúmgott rými fyrir borðstofuborð  Svalir: Útgengi er á svalir úr stofu/borðstofu.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með nýlegu harðparketi á gólfi. Fataskápar, rennihurðir með spegli eru í herberginu. Bjart og notalegt.
Svefnherbergi II: Bjart herbergi með nýlegu harðparketi á gólfi. Er með innbyggðu hárúmi og glugga sem vísarút í garð.
Svefnherbergi III: Herbergi með nýlegu harðparketi á gólfi. Hárúm, skrifborð og skápar eru samþætt í rýminu sem nýtist vel.
Svefnherbergi IV / Skrifstofa: Herbergi sem útbúið var inn af stofunni, nýtist sem svefnherbergi eða skrifstofa, með nýlegu harðparketi á gólfi. Fataskápur er í herberginu og gluggi veitir góða birtu.
Baðherbergi: Glæsilega endurnýjað baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf með dökkum gólfflísum og hvítum marmaramynstri á veggjum. Svart innrétting með handlaug, upphengt salerni, baðkar með sturtuaðstöðu og handklæðaofn.
Aðkoma og sameign: Snyrtileg aðkoma að húsinu með nægum bílastæðum og vel viðhaldinni sameign innandyra.

Bílastæði: Sér merkt bílastæði á lóð fylgir eigninni. Rafhleðslustaur er við bílastæðið en án hleðslustöðvar.
Sameiginlegt stigahús: Mjög snyrtilegt stigahús, nýlega málað, skipt um teppi og útidyrahurð.

Staðsetningin er góð í grónu hverfi með stuttri leið í alla helstu þjónustu, skóla og útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma 661-6056, gulli@remax.is 

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Helluvað 13
110 Reykjavík
99.2 m2
Fjölbýlishús
312
791 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Skógarás 17
110 Reykjavík
116.8 m2
Fjölbýlishús
31
676 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Elliðabraut 10
110 Reykjavík
99.6 m2
Fjölbýlishús
322
802 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Stóragerði 6
108 Reykjavík
116.7 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
413
702 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin