RE/MAX og Sigríður Guðnadóttir löggiltur fasteignasali kynna: Virkilega falleg og vel skipulögð 4ra herbergja enda íbúð á 2. hæð í snyrtilegu fjölbýli. Stæði í opinni bílageymslu. Tvennar svalir. 2017 : Hús háþrýstiþvegið, múrviðgert, málað og tréverk málað . 2022/2023: Snjóbræðsla og stétt fyrir framan hús endurnýjuð, brunnur settur á norðurgafl húss , drenlögn fyrir framan hús löguð.
***SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3D*** Nánari lýsing:
Forstofa: Af stigapalli er komið inn í teppalagða forstofu sem tvær íbúðir deila og þaðan er gengið inn í
þvottahús sem liggur milli tveggja innganga og deila því 4 íbúðir þvottaherbergi.
Forstofa /hol innan íbúðar með flísum og parketi á gólfi og vönduðum fataskápum.
Tvö rúmgóð barnaherbergi með parket á gólfi og gluggum sem snúa í austur.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi, innbyggðum fataskáp og glugga sem snýr í austur.
Eldhús með ljósri innréttingu, borðkrók með stórum gluggum og útgengi út á
grill
svalir sem snúa í suður. Stofa og borðstofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi og útgengi út á
stórar vestur svalir, með
fallegu sjávarútsýni. Baðherbergi er flísalagt með sturtubaðkari og fallegri innréttingu.
Garður: Stór, sameiginlegur garður með leiktækjum og er sameiginlegur Flétturima 31-33-35.
Bílastæði: Einkastæði í opnu bílskýli á bílastæði er fyrir neðan hús. Sameiginleg bílastæði eru fyrir neðan hús og á norðurhlið hússins.
Sér geymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu. Íbúðin er með parketi frá Birgisson, engir þröskuldar eru í íbúðinni (nema baðherberginu), nýlegir hurðarkarmar og hurðir með fallþröskuldi. 2025 voru allir gluggar innan íbúðar slípaðir og málaðir.
Í göngufjarlægð eru leikskólar, grunnskóli, menntaskóli, sundlaug og öll helsta þjónusta, s.s. í Bónus, Hagkaup, apótek, heilsugæsla, Egilshöll, Dalhús, Spöngin og Borgarholtsskóli sem og golfvöllurinn Korpúlfsstöðum og fallegar gönguleiðir í voginn fagra.Einstaklega falleg eign sem vert er að skoða. Nánari upplýsingar gefur Sigríður lgf. í síma 663 3219 eða sigga@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.