Berglind Hólm lgfs. og Þorsteinn Gíslason lgfs. kynna: Glæsileg ný 2ja herbergja íbúð á 1.hæð, íb.0105 með stæði í bílageymslu og stórri timbur verönd í vönduðu lyftuhúsi á Kársnesinu í Kópavogi. Íbúðin skiptist í forstofu með góðum fataskápum, gott alrými með eldhúsi, setustofu og borðstofu,, baðherbergi með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt sturtu beint á gólf, gott svefnherbergi með fataskápum og geymslu. Íbúðin er skráð 77,6 m2 og þar af er 10,2 m2 geymsla. íbúðin skilast með uppþvottavél, ísskáp, bakaraofni og spanhelluborði. Íbúðir eru seldar fullbúnar án gólfefna nema á votrýmum sem er flísalögð. Í íbúðum er sérstætt loftútskiptikerfi sem tryggir betra loft innan íbúða.
Myndir í auglýsingu eru af sambærilegri íbúð í húsinu og því bara til viðmiðunar af útliti innréttinga og rýma.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is og Þorsteinn Gíslason lögg.fasteignasali í síma 694-4700 eða steini@remax.is
Hafnarbraut 10 er fjölbýlishús, 4 hæðir ásamt hálf niðurgröfnum kjallara með fullniðurgrafinni bílgeymslu fyrir utan hús að stórum hluta. Aðalinngangar að byggingunni eru tveir ásamt jafn mörgum stiga- og lyftuhúsum sem hvert um sig er búið sjúkraflutningalyftu. Einnig eru inngangar frá dvalarsvæði ofan á bílgeymsluþaki.
Innréttingar: Sérlega vandaðar innréttingar með miklu og góðu skápaplássi og skúffum með ljúflokun frá VOKE-III.
Tæki í eldhús: Öll tæki í eldhúsi eru fra Siemens, frá Smith og Norland. Tæki sem fylgja með í kaupum eru bakaraofn, uppþvottavél, ísskápur og spanhelluborð með innbyggðri viftu, þó eru einstaka íbúðir með háf fyrir ofan eldavél.
Blöndunartæki á baðherbergjum, eldhúsi og í þvottaherbergjum: Blöndunartæki fyrir handlaugar eru einnarhandar tæki frá Grohe.
Hitakerfi: Í húsinu er hefðbundið ofnakerfi nema á baðherbergjum er gólfhiti.
- Aðkoma að íbúðum er um sameign í beinni tengingu við stiga- og lyftuhús. Í kjallara eru sérgeymslur ásamt reiðhjóla- og vagnageymslum og tæknirýmum. Einnig er þaðan beint aðgengi inn í bílgeymslu. Hluti sérgeymsla er með aðgengi frá bílgeymslunni, í beinni tengingu við bílastæði viðkomandi íbúðar. Í byggingunni eru samtals 48 íbúðir af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Litur byggingarinnar er ljós með einstöka uppbroti í öðrum litum . Gluggar eru gylltir að utan og dökkir að innan.
- Byggingin er staðsteypt með járnbentri steinsteypu. Útveggir og brunaveggir milli íbúða eru 200 mm þykkir. Útveggir eru einangraðir að utan með 100 mm steinullareinangrun. Einangrun er klædd af með álklæðningarkerfi sem veðurkápu. Útveggir kjallara eru einangraðir og múraðir að innan með 100 mm plasteinangrun.
- Allar lofta- og veggklæðningar innanhúss eru í brunaflokki 1. Léttir veggir innan íbúða eru úr álstoðum og klæddir með fermacell. Útveggir, innveggir og loft eru sandspörtluð og máluð. Milliveggir í geymslum eru úr álstoðum og klæddir með fermacell.
- Gluggar eru ál/tré með einangrunargleri og brunagleri þar sem þess gerist þörf. Gólfsíðir gluggar hafa hert- /öryggisgler upp í a.m.k. 60 cm hæð. Öll opnanleg fög í gluggum eru með barnalæsingu.
Frágangur innanhúss:Gólf: Íbúðir eru án gólfefna ef frá eru talin gólf í baðherbergjum og þvottahúsi sem verða flísalögð. Gólf án gólfefna verða afrétt og tilbúin til lagningar á endanlegu gólfefni.
Veggir.: Allir útveggir og berandi innveggir eru sandspartslaðir. Léttir innveggir eru hefðbundnir Fermacell plötuveggir sparslaðir og málaðir. Veggir á baðherbergjum með vatnsáraun (handlaug, bað og sturta) eru flísalagðir upp í loft.. Aðrir veggir votrýma í íbúðum eru málaðir með málningu með myglu og sveppavörn í háu gljástigi.
Skápar í herbergjum: Skápar eru breytilegir í stærð, þar sem hæð skápa fer eftir hæðum. Hæð skápa verður frá 232-292 cm. Leitast verður við að hafa hengi, hillur og/eða skúffur í hverri samsettri skápaeiningu. Ljúflokunarbúnaður verður á öllum hurðum og skúffum. Að innan verða skápar hvítir en ljóstóna að utan þar sem hliðar og hillur skápa eru úr viðarlíki. Skápar eru í forstofu, þvottahúsi, hjónaherbergi og barnaherbergjum.
Eldhús: Innrétting í eldhúsi er samkvæmt teikningu arkitekts en verður teiknuð sérstaklega upp fyrir framleiðslu. Allir skápar verða hvítir Að innan verða skápar hvítir en ljóstóna að utan þar sem hliðar og hillur skápa eru úr viðarlíki. Borðplata er harðplast. Ljúflokanir verða á öllum hurðum og skúffum innréttinga. Allar innréttingar verða keyptar af VokéII sem er viðurkenndur framleiðandi með langa viðskiptasögu. Með eldhúsinnréttingu fylgir bakaraofn, uppþvottavél, ísskápur og spanhelluborð með innbyggðri viftu, þó eru einstaka íbúðir búnar háf með kolasíu. Tækin eru af gerðinni Siemnes frá Smith og Norland. Blöndunartæki í eldhúsi eru svokölluð „einnarhandar“ tæki af vandaðri gerð Grohe.
Hurði: Innihurðir eru spautulakkaðar hvítar. Handföng og lamir eru með svartri stál áferð. Hurðir úr íbúðum út í sameign eru eldvarnarhurðir (EI-30CS) Hurðir á göngum og sameign í kjallara þar sem krafist er A-60 brunavarnar verða hurðir úr stáli og lakkaðar í viðeigandi lit.
Bað- og þvottaherbergi: Allar salernisskálar eru upphengdar og salerniskassi innbyggður í vegg. Glerskilrúm aðskilur sturtugólf sem er einhalla og aðskilið frá baðgólfi með lítilli brún. Blöndunartæki fyrir handlaugar eru svo kölluð „einnarhandar“ tæki. Í baðherbergi er sturta. Hitastillir er á blöndunartækjum. Þvottaherbergi eru með upphengdu borði. Skolvaskur og „einnarhandar“ blöndunartæki eru í borði. Gólfniðurföll eru í öllum bað- og þvottaherbergjum.
Loftræsikerfi: Í allar íbúðir er vélrænt inn og útsog úr alrými, baðherbergjum og þvottarýmum. Samstæða fyrir hverja íbúð verður staðsett í lofti svala. Vélrænt útsog er frá geymslum, lokuðum rýmum í kjallara og lokuðum gluggalausum rýmum í íbúðum, s.s. baðherbergjum og úr eldhúsum.
Bílageymsla: Flestum íbúðum fylgir eitt bílastæði í sameiginlegri bílgeymslu. Bílastæðin eru sérmerkt viðkomandi eignarhluta. Veggsúlur verða málaðar. Gólf er steypt og slípað án frekari meðhöndlunar. Bílageymslan er ekki upphituð en frostfrí. Bílageymslan er búin samtengdum reykskynjurum og vatnsúðakerfi. Bílgeymsluhurð eru með fjarstýrðum opnara. Gert verður ráð fyrir rafstreng í bílageymslu þar sem hægt verður að tengja inná hleðslustöð fyrir rafbíla.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is og Þorsteinn Gíslason lögg.fasteignasali í síma 694-4700 eða steini@remax.is