Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 2-3ja herb. íbúð að Garðastræti 13A í miðbæ Reykjavíkur. Um eignarlóð er að ræða. Einkaafnotaréttur að risi með 54,6 m2 botnfleti fylgir íbúðinni, en telja ekki til fermetra. Þakið er nýlega endurnýjað og þrír þakgluggar sömuleiðis. Risið nýtist vel sem svefnherbergi, leikherbergi, skrifstofa eða annað. Lofthæð upp í mæni er um 180 cm. Þessi íbúð er sú eina á efstu hæð og eru því gluggar á fjóra vegu. Af suðaustur svölum er frábært útsýni að Esjunni og yfir Grjótaþorpið, en húsið stendur efst í Grjótaþorpinu. Húsið er steinsteypt, teiknað af hinum virta arkitekt Sigvalda Þórðarsyni. Innan íbúðar er stórt baðherbergi og þvottahús, stofa, eldhús og afar rúgott svefnherbergi. Stigi er upp á loft. Í göngufæri er allt til alls. Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofurými með stiga, stofu, eldhús, herbergi, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 90,8 m2.*VINSAMLEGA SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Í OPIÐ HÚS SUNNUD. 8. FEBRÚAR Söluyfirlit má nálgast hérNánari lýsing:
Forstofa er inn af sameignargangi. Fallegur bogadreginn parketlagður forstofustigi er innan íbúðar. Þrír gluggar hleypa góðri birtu inn í íbúðarrýmið.
Eldhús er með hvítri innréttingu á tveimur veggjum, með viðarborðplötu. Eldhúsinnrétting var endurnýjuð um 2012. Auka öryggi er í innréttingu fyrir eldhústæki. Veggfestur háfur yfir helluborði. Parket á gólfi.
Stofa er björt með útsýni upp Bárugötuna og yfir að Landakotskirkju. Sjarmerandi útskot í einum glugga. Parket á gólfi stofu.
Hol/gangur er miðja íbúðar og þar liggur stigi upp á risloft. Parket á gólfi.
Herbergi er virkilega rúmgott og út frá því er hægt að ganga út á bogadregnar
svalir. Í svefnherbergi er hvítur fataskápur. Parket á gólfi.
Svalir tengja svefnherbergi og baðherbergi. Rennihurð er út á steinsteyptar svalir með einstöku útsýni að Hallgrímskirkju, Esjunni og miðbæ Reykjavíkur. Framan við svalir eru gólfflísar þar sem hægt er að ganga yfir í baðherbergið.
Baðherbergi er einstaklega stórt. Þar er bæði baðkar og sturtuklefi sem og aðstaða og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Upphengt salerni, innrétting undir handlaug og blöndunartæki voru endurnýjuð 2025. Baðherbergið er flísalagt að mestu með gráum flísum. Áður var eldhús í hluta af þessu rými.
Risloft er yfir allri íbúðinni og hafa eigendur þessarar íbúðar einkaafnotarétt af því. Gólfflötur þar er 54,6 m2 og telst ekki til heildarfermetra íbúðar. Parket á gólfi og þrír nýlegir þakgluggar.
Geymsla er sér í sameign í kjallara.
Garður er gróinn og afgirtur aftan við hús til austurs. Framan við hús er nýhellulögð stétt eftir að öll inntök inn í hús voru endurnýjuð sumar 2025.
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-