RE/MAX Ísland logo
Skráð 18. mars 2025
Deila eign
Deila

Birkihlíð 5

SumarhúsVesturland/Akranes-301
150 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
98.900.000 kr.
Fermetraverð
659.333 kr./m2
Fasteignamat
77.000.000 kr.
Brunabótamat
91.150.000 kr.
Mynd af Sigríður Guðnadóttir
Sigríður Guðnadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2023
Þvottahús
Garður
Tveir inngangar
Fasteignanúmer
2515345
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
upprunalegt
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX og Sigríður Guðnadóttir löggiltur fasteignsali kynna: Einstaklega fallegt, vel staðsett og viðhaldslítið heilsárshús á fallegum stað í Hvalfjarðarsveit, glæsilegt útsýni yfir Hvalfjörðinn.

***SKOÐAÐU EIGNINA HÉR Í 3D***
***SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT SENT STRAX***


Húsið er innflutt frá Litháen frá fyrirtækinu Ecobustas og er húsið sett saman/smíðað af aðilum sem komu til landsins á þeirra vegum. Burðarvirki hússins er steinsteypa og timbur. Sökklar og botnplata eru steinsteypt. 8.464 fm leigulóð og er leigusamningur til 99 ára frá 15.júlí 2021. Skipulag eignar er sérlega gott og er húsið sérlega vel staðsett hvað varðar birtuskilyrði og útsýni. 
* Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 150 fm sem er íbúðarrýmið sjálft - grunnur fyrir bílskúr eða gestahús er ca 24 fm með pípu- og rafmagnslögn *
 
* 3 rúmgóð svefnherbergi * 2 baðherbergi * Þvottahús inni á öðru baðherberginu * Gólfhiti ásamt handklæðaofnum á baðherbergi * Hitaveita - Innfelld ljós í öllum rýmum * Stórt og bjart eldhús með granít borðplötu * Gólfsíðir gluggar í stofu og borðstofu * Dregið fyrir rafhleðslustöð * 189,4 fm verönd úr innfluttri furu frá Litháen í kringum húsið * Heitur og kaldur pottur frá Normx * Yfirbyggt skýli á vesturhlið *Rotþró er 3000 lítra*

Nánari lýsing eignar:
Forstofa
er rúmgóð með hvítum fataskápum og flísum á gólfi.
Herbergi I við forstofu með góðum fataskápum og parketi á gólfi
Stofa og eldhús eru í opnu rými,  einstaklega bjart , mikl lofthæð og gólfsíðir gluggar með einstöku útsýni yfir fjörðinn. Stór rennihurð er við borðstofuna og er útgengt á stóra verönd sem er samtals 189,4 fm, en einnig er útgengt á veröndina úr stofunni vestan megin.
Eldhús með hvítri háglans innrétting með ljósri steinborðplötu, innffelldum vaski, góðu skápaplássi, veggföstum ofni, innbyggðri uppþvottavél og helluborði með gufugleypi.  Útgengi út á veröndina við endan á eldhúsinu.
Herbergi II er mjög rúmgott með opnum fataskápum / fataherbergi. Innangengt er á baðherbergi.
Baðherbergi  er rúmgott með fallegri innréttingu, sturtu, upphengdu wc, rafmagns handklæðaofn, flísum á gólfi og inni í sturtunni,  útgengi út á veröndina, en þar er bæði heitur  og kaldur pottur frá Normx með hágæða stýrikerfi.
Herbergi III  er mjög rúmgott með góðum fataskápum, Við hliðina á herberginu er rúmgott baðherbergi / þvottahús.
Baðherbergi II  með fallegri innréttingu undir handlaug, upphengdu wc, sturtu, flísar á gólfi og inni í sturtunni.
Þvottahús (inn á baðherbergi II)  góð innrétting með vaski, hillur fyrir lín og hreingerningarvörur, tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara, tauskúffur undir þvottavél og  þurrkara, rafmagns handklæðaofn.
Verönd í kringum húsið er samtals 189,4 fm og þar af eru 16 fm yfirbyggðir vestanmegin sem hægt er að nýta fyrir útiborðstofu og/eða grillskýli. Utan á húsinu allt um kring er virkilega góð lýsing og eru rafmagnstenglar víða.
* Parket og hurðar eru frá Birgisson - Flísar eru frá BYKO - Innréttingar eru frá IKEA - Blöndunartæki á baðherbergjum frá Tengi.
* Dregið hefur verið fyrir rafhleðslustöð - Gólfhiti er í öllu húsinu með digital stýrikerfi.
* Nýlega hefur verið lagt í veginn að húsinu og rótþróin sem er 3000 lítra grafin niður og gengið frá sbr. reglugerð.
Allt sem er í húsinu við sýningu utan persónulegra muna getur fylgt með í kaupunum *

Nánari upplýsiingar gefur Sigríður lgf. í síma 663 3219 eða sigga@remax.is 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
remax@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin