RE/MAX Ísland logo
Skráð 16. feb. 2025
Söluyfirlit

Hjallasel 35

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
69.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
939.219 kr./m2
Fasteignamat
57.850.000 kr.
Brunabótamat
44.400.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1985
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Aðgengi fatl.
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2055969
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt.
Raflagnir
Upprunalegt.
Frárennslislagnir
Upprunalegt.
Gluggar / Gler
Upprunalegt.
Þak
Upprunalegt.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Kominn tími á að skipta um gler í nokkrum gluggum og timburverk þarfnast málunar og að hluta til endurnýjunar.
Parket við forstofudyr er upphleypt. 
Einhver ljós virka ekki. Ekki vitað hvað veldur. 
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 2ja herbergja sérbýli í Hjallaseli 35 í Reykjavík. Fyrir 63 ára og eldri. Parhúsið er á einni hæð og með aukinni lofthæð. Gluggar eru á þrjá vegu og garður er gróinn með viðarverönd út frá stofu til suðurs. Bílastæði er alveg við inngang. Einnig göngustígur sem leiðir mann beint niður í Seljahlíð, þar sem ýmis þjónusta er í boði. Húsið er því vel staðsett. 
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, herbergi, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 70 m2. 

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN !
 
Söluyfirlit má nálgast hér
Nánari lýsing:
Forstofa er inn af SA- gafli húss. Þrefaldur hvítur forstofuskápur og fatahengi. Inn af forstofu er geymsla.
Stofa er með gluggum til suðurs og útgengi er út á afgirta viðarverönd. Parket á gólfi stofu.
Eldhús er með hvítri innréttingu og milli efri og neðri skápa eru ljósar veggflísar. Stæði er fyrir uppþvottavél. Ofn, helluborð og gufugleypir. Korkur á gólfi.
Herbergi er rúmgott með innfelldum skápum í einum vegg. Parket á gólfi.
Baðherbergi er mjög rúmgott með þreplausum sturtuklefa. Hvít innrétting undir handlaug og grá borðplata. Veggfest skápaeining með spegli og ljósi. Upphengt salerni og veggfest salernisstoð. Stæði fyrir þvottavél. Hvítar veggflísar og ljósdrapplitaðar á gólfi. Gluggar og opnanlegt fag.
Geymsla inn af forstofu er með skápum á einum vegg og gegnt þeim er lagnagrindin. Gluggi með opnanlegu fagi. Málað gólf.
Bílastæði er alveg við inngang. Gott aðgengi er fyrir bíla því húsið er í botnlanga og því auka rými í götu. Við hús eru hellulagðar stéttar og bílaplan. Að öðru leiti er garðurinn gróinn og með viðarverönd.
Göngustígur niður í Seljahlíð er bein og greið leið frá útidyrahurð og að inngangi inn að aðalinngangi í Seljahlíð. Í Seljahlíð er hægt að sækja félagsstarf sem og fá þar hádegismat alla daga vikunnar. Einnig starfar þar fótaaðgerðarfræðingur. Seljahlíð er bæði þjónustuíbúðarkjarni og hjúkrunarheimili og er þar vakt allan sólahringinn.

ATH að um dánarbú er að ræða og þekkja seljendur ekki ástand eignar. Kaupandi er hvattur til að skoða eignina vel.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Opið hús:06. okt. kl 17:00-17:30
Image
Opna eign
Flókagata 27
105 Reykjavík
75.7 m2
Fjölbýlishús
312
831 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Ljósheimar 10
104 Reykjavík
98.2 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
412
687 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Opið hús:06. sept. kl 17:30-18:00
Image
Opna eign
Frostafold 30
112 Reykjavík
86.9 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
747 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Opna eign
Opið hús:06. júlí kl 12:30-13:00
Image
Opna eign
Brautarholt 4
105 Reykjavík
58.9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1085 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin