RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: 3-4 herbergja risíbúð við Hvaleyrarholt í Hafnarfirði. Íbúðin er vel skipulögð með miklu útsýni út á sjó og svölum.
*** Smelltu hér til að skoða eignina í 3D ***
* Getur verið afhent fljótlega
* 2-3 svefnherbergi
* Svalir og sérbílastæðiSamkvæmt fasteignayfirliti frá Þjóðskrá Íslands er eignin samtals skráð 42,5 m2.Eignin sem um ræðir er risíbúð í þriggja hæða fjölbýli og nýtist rými eignarinnar mun betur en uppgefin fermetrafjöldi gefur til kynna.
Nánari lýsing: Komið er upp á teppalagðan
stigapall.
Forstofa: parket á gólfi.
Herbergi I: parket á gólfi.
Eldhús: parket á gólfi, frá eldhúsi er útgengt út á svalir sem snúa í suð-vestur.
Stofa-og borðstofa: parket á gólfi, frá borðstofu er fallegt útsýni og sést m.a. vel til Hallgrímskirkju. Í dag er búið að stúka þriðja svefnherbergið út frá stofu.
Herbergi II: parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: flísar á gólfi, upphengt salerni, sturta og pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymslurými er staðsett í súðarskápum sem eru staðsettir inn á baðherbergi.
Sameiginleg
vagna-og hjólageymsla staðsett í kjallara hússins.
Íbúðin er björt og fallegt útsýni frá stofu, svefnherbergi og baðherbergisglugga- þetta er vel skipulögð eign sem vert er að skoða. Íbúðinni fylgir sérstæði(ómerkt) á bílaplani til hliðar við húsið.
Staðsetning eignarinnar er góð en hún er ekki langt frá Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði og verslun og þjónustu við Hvaleyrarbraut.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.200 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-