RE/MAX Ísland logo
Skráð 8. okt. 2026
Söluyfirlit

Stálhella 20

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
65 m2
Verð
25.900.000 kr.
Fermetraverð
398.462 kr./m2
Fasteignamat
19.650.000 kr.
Brunabótamat
14.500.000 kr.
Byggt 2025
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2537081
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Stál
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
25
Vatnslagnir
byggt 2025
Raflagnir
byggt 2025
Frárennslislagnir
byggt 2025
Gluggar / Gler
byggt 2025
Þak
byggt 2025
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Upphitun
Ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Erling Proppé & REMAX kynna í endursölu vandað og flott bil við Stálhellu 20, 221 Hafnarfirði. 

Um er að ræða geymslubil sem er að grunnfleti 50m2 en með ca. 15m2 óskráðu millilofti og uppsettu salerni, samtals 65m2 

Alvöru epoxy á gólfum 
Álgluggar og hurðir 
Vönduð bílskúrshurð með öxulmótor
Þak með 10 ára ábyrgð - 160mm yleiningar með 2xlagi af IKO þakpappa - Heyrist lítið í rigningu í þessum bilum.


Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: 
Erling Proppé, lgf, s: 690-1300, erling@remax.is


Staðsetning
Frábærlega vel staðsett aðeins 1-2 min frá Reykjanesbrautinni. 

Undirstöður & botnplata.
Staðsteyptir sökklar á þjappaðri fyllingu. Botnplata staðsteypt með C35/45 vélslípisteypu. Botnplata verður afhent vélslípuð eða þurrslípuð, fer eftir veðuraðstæðum við niðurlögn. Niðurfall fyrir innan innkeyrsluhurð. 
 
Burðarvirki, veggir & þak
Húsin eru úr límtrésgrind, á staðsteyptum sökklum veggir eru úr 100mm þykkum samlokueiningum (harðpressuð steinull 100kg./m3 klædd með 0,6mm þykku alumzinki í RAL7016 anthracite gráum að utan, RAL9010 (Pure white) að innan.
Þak er gert úr 120mm þykkum steinullareiningum (harðpressuð steinull 100kg/m3) í RAL7016 anthracite gráum að utan, RAL9010 (Pure white) að innan. (sjá mynd að neðan)

Pípulagnir
Lagnir eru utanáliggjandi og sýnilegar, skolvaskur verður uppsettur með heitu og köldu vatni og ofn/ofnar uppsettir til upphitunar. Skólp stammi fyrir salerni verður í gólfi í horni. (Salerni ekki uppsett) Gert er ráð fyrir lagnaendum fyrir td. Salerni.
Hitakostnaður eininga er sameiginlegur og skiptist hlutfallslega eftir eignarhluta í samræmi við eignaskiptasamning. 

Raflagnir
Raflagnir eru utanáliggjandi og sýnilegar, greinatafla verður uppsett með 3-fasa rafmagni og einn uppsettur 3-fasa rafmagnstengill þar við hlið. Ljós í lofti, rafmagnstengill í lofti fyrir hurðaopnara (hurðaopnari fylgir ekki), ljósarofi og rafmangstengill við hurð. Einnig verður útilýsing uppsett og tengd við sólúr. Sér mælir er fyrir hverja einingu, staðsettur í inntaksrými hússins.
Aðgangsstýrt hlið verður uppsett af byggingaraðila, öryggismyndavélakerfi verður einnig uppsett og sett í umsjá húsfélags sem mun mæta mánaðarlegum kostnaði með húsgjöldum.

Iðnaðarhurð & gönguhurð
Iðnaðarhurð er 2.8 m á breidd og 2.8 m á hæð með gluggafleka, við hlið hennar er gönguhurð, ofan við hana er gluggi með opnanlegu fagi.

Bílastæði 
Fjöldi bílastæða verður á lóð og eru þau í sameign allra, bílaplan hvers matshluta verður malbikað samhliða framkvæmdum þess matshluta. 

Lóð 
Lóðin verður afgirt við byggingu fyrsta matshluta með aðgangsstýrðu aðalhliði, einnig verður hefðbundið læst hlið til viðbótar.

Byggingaraðili
Byggingaraðilinn er Reising Byggingarfélag, að baki félagsins standa aðilar með gríðarlega reynslu í byggingum atvinnuhúsnæðis, fjölda íbúðarhúsnæða ásamt opinberu húsnæði svo sem skólum, leiksskólum og íþróttahúsum svo eitthvað sé nefnt. Fyrirtækið leggur áherslu á að veita góða þjónustu og vandaða vöru.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: 
Erling Proppé, lgf, s: 690-1300, erling@remax.is
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin