Katrín Eliza Bernhöft og Ólafur Gísli Sveinbjörnsson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX kynna í einkasölu: BÁRUGRANDI 11, 107 REYKJAVÍKEinstaklega falleg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á efstu hæð með stæði í bílageymslu. Íbúðin var mjög mikið uppgerð árið 2022 eftir hönnun Thelmu Friðriksdóttur arkitekts. Húsið var mikið uppgert að utan árið 2024. Glæsileg íbúð á frábærum stað í Vesturbænum.
Nánari lýsing:
Sameign öll hin snyrtilegasta.Komið inn í anddyri sem er með fatahengi.
Stórt baðherbergi sem hefur verið endurnýjað á mjög vandaðan máta. Flísar í hólf og gólf, stór flísalögð sturta, upphengt salerni og góð innrétting. Vönduð innrétting er fyrir þvottavél og þurrkara á baði.
Stofan er rúmgóð og björt og opið inn í eldhúsið.
Eldhúsið hefur verið allt tekið í gegn á mjög vandaðan máta. Steinn á bekkjum, vönduð tæki og vel skipulögð innrétting. Sér skrifborðsrými hannað inn í innréttingu. Úr
eldhúsi gengið út á suðvestur svalir.
Svefnherbergin eru tvö.
Hjónaherbergi rúmgott með skápum. Fallegar franskar svalir í hjónaherbergi.
Barnaherbergi.
Gólfefni eru harðparket og flísar. Hiti í gólfum á stofu, eldhúsi og baði. Allir sólbekkir úr steini.
Allir rafmagnsrofar og tenglar endurnýjaðir.
Gluggar og gler endurnýjað í herbergjum 2024.Sér geymsla er í sameign í kjallara og sér stæði í lokaðri bílageymslu sem nýlega hefur verið endurbætt m.a. uppsetningu hleðslustöðva.
Glæsileg íbúð á besta stað í Vesturbænum. Húsið mikið endurnýjað að utan á undanförnum árum og lítur mjög vel út. Múr og mál, þakjárn endurnýjað og
gluggar og gler að hluta.Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 110,7 fm. Íbúðin er skráð 86,6 fm og bílskýli 24,1 fm. Eignin hefur fastanúmerið 202-4925, íbúð merkt 060401 og selst ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðaréttindum. Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2027 er kr. 86.450.000,-
Fyrir söluyfirlit og allar nánari upplýsingar, hafðu samband:
Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali, katrin@remax.is eða í síma 699 6617Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi - Einstaklingar 0,8% af heildarfasteignamati - Lögaðilar 1,6%.- (fyrstu kaup einstaklinga 0,4%)
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
- Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
- Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunnar.