RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Mikið endurnýjað og eigulegt parhús á baklóð við Grettisgötu 55A í hjarta Reykjavíkur. Eignin skiptist í tvær rúmgóðar 2ja herbergja íbúðir, hvor um sig með sérinngangi, sem býður upp á sveigjanlega nýtingu eða útleigumöguleika. Húsið hefur gengist undir gagngerar endurbætur að utan og innan á síðustu árum, sem gerir það að vönduðu og viðhaldslitlu heimili. Björt rými með parketi og nýlegum innréttingum. Frábær staðsetning í rólegu umhverfi þrátt fyrir að vera í miðbænum, stutt frá allri helstu þjónustu, menningu og útivistarsvæðum. Alls er eignin 93,40 m² að stærð.* Útleigueining. Húsið skiptist í tvær 2ja herbergja íbúðir - 46,7 m² hvor.
* Endurnýjuð eldhús og baðherbergi
* 2021 var húsið múrviðgert að utan og málað ásamt þakjárni.
* Endurnýjun sl. ár tiltelur ma. klóaklagnir ( undir húsi og út í götu), rafmagnslagnir og töflur, ofnar, ofnalagnir, gler og glugga að miklum hluta, þakjárn og rennur.
* Hellulögð verönd með skjólveggjum og sólpallur
SKOÐAÐU ÍBÚÐ EFRI HÆÐAR Í 3D HÉR SKOÐAÐU ÍBÚÐ NEÐRI HÆÐAR Í 3D HÉREfri hæðLjós og falleg tveggja herbergja íbúð með sérinngangi, parketi á gólfum og góðu útsýni.
Forstofa: Flísar á gólfi.
Eldhús: Nútímaleg, grá innrétting með helluborði, bakarofni og innbyggðri uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa: Bjart rými með parketi á gólfi og stórum suðurglugga sem veitir mikla dagsbirtu.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt með innréttingu með handlaug, baðkari, vegghengdu salerni og tengi fyrir þvottavél.
Geymsluloft: Góð geymsluaðstaða er yfir íbúðinni.
Neðri hæðNotaleg tveggja herbergja íbúð með sérinngangi og beinu aðgengi að útisvæði.
Forstofa: Flísar á gólfi.
Eldhús: L-laga innrétting í ljósum litum með bakaofni, helluborði og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa: Opin stofa að hluta til eldhúsi með parketi á gólfi og suðurglugga sem tryggir góða birtu.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi staðsett innar í íbúðinni með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari, innréttingu með handlaug, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél.
Garður og umhverfiSkjólgott útisvæði með palli og frábærri staðsetningu í miðbænum.
Útisvæði: Hellulögð verönd með skjólveggjum og sólpallur sem snýr í suður, býður upp á notalega útiveru.
Aðkoma: Eignin stendur á baklóð og aðkoma er milli húsa Grettisgötu 55 og 57.
Staðsetning: Virkilega róleg og eftirsóknarverð staðsetning miðsvæðis í hjarta Reykjavíkur. Stutt er í alla helstu þjónustu, menningu, sundlaug og fjölbreytta útivist.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.isVegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.