RE/MAX Ísland logo
Skráð 9. maí 2026
Söluyfirlit

Álftamýri 54

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
143.3 m2
4 Herb.
Verð
81.000.000 kr.
Fermetraverð
565.248 kr./m2
Fasteignamat
87.050.000 kr.
Brunabótamat
61.370.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Vernharð S Þorleifsson
Vernharð S Þorleifsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1963
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2014307
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Geislahitun
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali kynnir í sölu Álftamýri 54.  Þetta fallega hús sem hefur verið áberandi kennileiti í borginni um áratuga skeið.
Um er að ræða rúmgóða og mjög bjarta 3-4 herbergja íbúð á fyrstu hæð ásamt bílskúr. Eignin er skráð samtals 143,4 fm samkvæmt HMS, þar af er íbúðin 99,8 fm, tvær geymslur samanlagt 18,3 fm og bílskúr með gryfju 25,2 fm.
Íbúðin er með glugga á þrjá vegu, fallegu útsýni og tengi fyrir þvottavél innan íbúðar. Staðsetningin er afskaplega góð í vinsælu og grónu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og íþróttasvæði Víkings í Safamýri. Verslunarmiðstöðin Kringlan er í göngufæri.
Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / magga@remax.is
Kíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða á Instagram

Nánari lýsing:
Komið er inn í hol með eldhús á vinstri hönd.
Eldhús er með snyrtilegri hvítri innréttingu og borðkrók.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á suðursvalir. Stórir og fallegir gluggar einkenna rýmið.
Hjónaherbergi er með skemmtilegu fataherbergi inn af og parketi á gólfi.
Á teikningum eru tvö barnaherbergi. Þau hafa verið sameinuð í eitt en hurðin var látin vera og er því auðvelt að setja upp vegg aftur og gera tvö herbergi.
Baðherbergi er snyrtilegt og flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu og sturtuklefa.
Mjög gott geymslurými  í sameign.
Bílskúr er 23,1 fm með nýlegri bílskúrshurð með gönguhurð og gryfju.
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla.
Hiti er í stétt fyrir utan.
Hér er um að ræða rúmgóða og vel skipulagða eign í þessu vinsæla hverfi sem Háaleitishverfið er. Álftamýrarskóli er við hlið hússins og stutt göngufæri er í helstu þjónustu og útivist.
Fyrir þá sem kunna að meta  moderníska klassík þá er þetta húsið fyrir þig. Það hefur verið  einkennandi hluti af borgarmyndinni með þessum áberandi gulu og bláu flötum með hreinum línum og stórum gluggum og hver man ekki eftir upprunalegu jólaseríunum sem voru lengi partur af því að komast í jólaskapið.
 
Byggt 1968
25.2 m2
Fasteignanúmer
2014307
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
18
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.370.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Frostafold 25
112 Reykjavík
142.8 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
567 þ.kr./m2
80.900.000 kr.
Opna eign
Opið hús:05. nóv. kl 17:30-18:00
Image
Opna eign
Stelkshólar 2
111 Reykjavík
142.3 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
513
576 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Ásgarður 43
108 Reykjavík
129.6 m2
Raðhús
514
655 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin