RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg, björt og töluvert endurnýjuð þriggja herbergja 88,6 fm. íbúð á fjórðu hæð á eftirsóttum stað við Fornhaga 13 í Vesturbænum Reykjavík. Íbúðin sjálf er 79,2 fm. og skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu með útgengt út á suður svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla 9,4 fm. er staðsett í sameign.
Einstakt útsýni er úr íbúðinni til sjávar og fjalla. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, göngufæri m.a. í Melaskóla, Hagaskóla, og Háskóla Íslands, sundlaug Vesturbæjar og Melabúðin. Einnig eru fallegar göngu og hjólaleiðir við Ægissíðuna.KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
*** ATH. Seljendur skoða einnig skipti á stærri eign í sama hverfi ***
Upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti á netfangið gudrunlilja@remax.is.
Nánari lýsing:Forstofa er með fatahengi og innbyggðum fataskáp.
Eldhús er með fallegum hvítum og stílreinum innréttingum. Úr eldhúsi er gengið út á
svalir til suðurs.
Borðstofa og stofa er við eldhús í mjög björtu og opnu rými, einnig útgengt þar út á svalir. Útsýni yfir sameiginlegan garð og til sjávar. Stórir og bjartir gluggar eru í stofu og eldhúsi.
Svefnherbergin eru tvö, hjónaherbergi er mjög rúmgott með innbyggðum fataskápum. Barnaherbergi er minna með litlum innbyggðum skápum. Herbergin eru mjög björt einnig með fallegu útsýni til norðurs.
Baðherbergi er með fallegri hvítri vaskinnréttingu, upphengdu salerni og góðri sturtu. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi.
Sérgeymsla er staðsett í sameign 9,4 fm. ásamt sameiginlegu
þvottahúsi og þurrkherbergi. Einnig er sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla.Garður er sameiginlegur, vel hirtur og snyrtilegur, m.a. með leiktækjum og matjurtagarði. Garðurinn hefur fengið fjölda viðurkenninga í gegnum tíðina.
Bílastæði sameiginleg, hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla er á lóð.
Húsið er fallegt og hefur fengið gott viðhald, virkt og gott húsfélag. Húsið fallega hannað á sínum tíma og upprunalegar innréttingar og hurðar fengið að halda sér að hluta. Stigagangur og sameign hússins öll hin snyrtilegasta. Virk umhverfisvernd er í húsinu sem heldur úti vefsíðunni https://fornhagablokkin.wordpress.com/
2022-2023 voru töluverðar framkvæmdir á vegum húsfélags m.a. gluggaskipti, múr- og þakviðgerðir. Þakjárn endurnýjað og húsið endursteinað. Skipt um glugga og gler að hluta.
2019 skipt um hurðir í sameign út í garð og sett upp hleðslustöð á bílastæði.
2017 voru frárennslislagnir hússins fóðraðar.
2015 var drenað við suður og vesturhlið hússins.
2014-2015 var íbúðin töluvert endurnýjuð og breytt, baðherbergi endurnýjað sem og eldhús sem var opnað inn til stofu. Ný gólfefni, fallegt harðparket með furuáferð sett á öll rými fyrir utan baðherbergi sem var flísalagt.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.