RE/MAX Ísland logo
Skráð 7. feb. 2026
Söluyfirlit

Rauðamýri 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
108.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
87.900.000 kr.
Fermetraverð
812.384 kr./m2
Fasteignamat
74.850.000 kr.
Brunabótamat
58.550.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Þorsteinn Ólafs
Þorsteinn Ólafs
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2006
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2290695
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

RAUÐAMÝRI 3  - GLÆSILEG ÚTSÝNISÍBÚÐ Í MOSFELLSBÆ

Rauðamýri 3 er glæsileg 3ja herbergja endaíbúð á efstu hæð í litlu 3. hæða fjölbýli rétt við rætur Úlfarsfells. Útsýnið frá íbúðinni er einstaklega glæsilegt. Reykjavík, Snæfellsjökull, Faxaflói og Esjan eru þar aðal útsýnispunktar. Mikil lofthæð í stofu, stórir gluggar með strimlagluggatjöldum. Tvennar svalir.
Gegnheilt parket frá Agli Árnasyni er í alrými og svefnherbergjum. Flísar í forstofu, baðherbergi og þvottaherbergi. Gólfhiti er í allri íbúðinni.

Nánari lýsing:
Forstofa: 
Komið er inn í rúmgóða forstofu með dökkum flísum á gólfi. Góður fataskápur er í rýminu.
Gangur: Komið er inn á gang með gegnheilu parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa: Stofa og borðstofa eru samliggjandi með opið yfir í eldhúsið, parket á gólfi. Mikil lofthæð er í rýminu með vönduðum innbyggðum ljósum. Í stofu eru stórir gluggar ásamt „panorama“ glugga með stórglæsilegu útsýni til suðurs, vesturs og norðurs. Útgengt er úr stofu á rúmgóðar og skjólgóðar svalir sem snúa í suður, að Úlfarsfelli, Reykjavík og Faxaflóa.
Eldhús: Eldhúsið er opið yfir í stofuna, stúkað af með eyju, parket á gólfi. Innréttingin er mahogany með rúmgóðum efri og neðri skápum á einum vegg og góðum hirslum í eyju frá HTH.
Frá eldhúsi er útgengt á svalir til norð-vesturs með útsýni yfir Reykjavík, Faxaflóa, Snæfellsjökul, Esjuna og Mosfellsbæ.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með glugga í átt að Lágafelli og Esjunni. Bæði baðkar og sér sturta frá Tengi. Góð hvít innrétting, dökkar flísar á gólfi en hvítar á veggjum.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er mjög rúmgott með parketi á gólfi og tvöföldum góðum fataskápum, gluggi sem snýr í suður í átt að Úlfarsfelli. Hjónaherbergi er í dag notað sem barnaherbergi.
Barnaherbergi: Barnaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og tvöföldum fataskápum, gluggi sem snýr í norður í átt að Esju, Mosfellsbæ og Lágafelli. Barnaherbergið er í dag notað sem hjónaherbergi.
Þvottaherbergi: Þvottaherbergið er með flísum á gólfi og góðri innréttingu með vinnuborði. Skolvaskur og vegghengdur skápur.
Geymsla: Mjög rúmgóð 8 fm sér geymsla er í sameign.
Bílastæði: Næg sameiginleg bílastæði á lóðinni og rafmagnshleðslustaur.
Sameign: Sameign hússins er mjög snyrtileg með svörtu teppi á stigagangi ásamt flísum. Í kjallara er hjóla og vagnageymsla.
 
Gróin sameiginleg lóð með góðu leiksvæði fyrir börnin. Skólar, leikskólar og sundlaug eru í göngufæri, undirgöng liggja undir Vesturlandsveg. Stutt í skemmtilegar gönguleiðir úti í náttúrunni. Góð tenging við stofnbraut til Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212, to@remax.is.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin