Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir: Fallegt endaraðhús á einni hæð ásamt bílskúr við Laxalæk 32 á Selfossi. Húsið er skráð 105,1fm og bílskúrinn 22,9fm, samtals 128fm samkv.HMS. Húsið er timburhús, klætt að utan með litaðri álklæðningu og viðarklæðningu. Hiti er í gólfum á öllu húsinu. Heitur pottur. Íbúðin skiptist í forstofu, alrými (stofu & eldhús), tvö svefnherbergi, herbergi, baðherbergi og þvottahús.
Nánari lýsing:Forstofa með góðum fataskáp.
Eldhús er mjög rúmgott, opið við stofu með fallegri dökkri innréttingu á einum vegg, tveir Siemens ofnar, hvítir neðri skápar á heilum vegg, lofthengdur háfur yfir rúmgóðri eyju með helluborði, gott skúffupláss í eyjunni.
Stofa með útgengt út á stóra aflokaða timburverönd í austur sem nær meðfram öllu húsinu, heitur pottur mót suðri.
Svefnherbergi eru tvö, annað þeirra með stórum fataskáp á heilum vegg.
Herbergi innaf bílskúr með sér inngangi, gluggi, útgengt út á verönd.
Baðherbergi með viðarlitaðri innréttingu, handklæðaofn, upphengt wc, sturta, innbyggð blöndunartæki, flísar á gólfi, gluggi.
Þvottahús innaf gangi, rúmgóð ljós innrétting, þvottavél og þurrkari í vinnuhæð, handklæðaofn, dyr út á lóð, innangengt í bílskúr.
Gólfefni: Vinylparket á forstofu, alrými (stofu & eldhúsi), herbergjum, skrifstofu og þvottahúsi, flísar á baði.
Niðurtekin loft með óbeinni lýsingu í forstofu, gangi, alrými (stofu & eldhúsi) og baði.
Virkilega gott endaraðhús á vinsælum stað á Selfossi.
Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 59.900.