RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu hesthús að Landsenda 15, í Spretti - 203 Kópavogi. Hér er um að ræða einstaklega vel skipulagt og snyrtilegt 6–8 hesta hús.Nánari lýsing:Hestarými: Innréttað fyrir 7 hesta í núverandi uppsetningu (3 eins hesta stíur 4,6 fm² og 2 tveggja hesta stíur 7 fm²). Stíurnar eru djúpar safnstíur með grindum, en auðvelt er að breyta þeim í klassískar safnstíur ef framtíðareigandi kýs. Hitalögn er í fóðurgangi. Húsið er skráð fyrir 6 hesta, en er ekki langt frá því að uppfylla skilyrði fyrir 8 hesta samkvæmt reglugerð.
Vinnuaðstaða: Gott aðgengi er fyrir vélmokstur þar sem opna má inn í stíjurnar frá framhlið hússins. Rafmagnsspil er uppsett til að draga inn heyrúllur sem geymdar eru fyrir aftan hús, sem léttir alla vinnu til muna.
Kaffistofa og snyrting: Rúmgóð og björt kaffistofa með fallegri innréttingu, uppþvottavél og ísskáp. Innan af kaffistofu er snyrtilegt salerni og hol með þvottavél.
Svefnloft og geymsla: Fyrir ofan kaffistofuna er u.þ.b. 8 m² svefnloft sem eykur nýtingu hússins. Hnakkageymsla er í læstu rými, og yfir henni er rúmgott geymsluloft. Hlaðan er stór með góðu vinnuplássi.
Loftræsting: Húsið er búið öflugum útsogsblásara í hestarými. Að auki er sérstakt loftræstikerfi fyrir hlöðu, hnakkageymslu og kaffistofu sem tryggir ferskt, hitað loft og kemur í veg fyrir raka og ryk söfnun.
Lóð og umhverfi:Það sem gerir Landsenda 15 einstakt er útisvæðið. Húsinu fylgir stórt sérgerði. Við gerðið er breið, upphituð stétt sem tryggir gott aðgengi og öryggi yfir vetrarmánuðina.
Staðsetning:Húsið stendur á einum besta stað í Spretti, á leiðinni upp í Guðmundarlund. Staðsetningin er einstaklega skjólsæl; húsið hlífir gerðinu í ríkjandi vindáttum sem lágmarkar snjósöfnun. Stutt er í reiðhöll félagsins, hringvöll og frábærar reiðleiðir allt um kring.
Landsendi 15 er hesthús í sérflokki þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar. Frábær kostur fyrir kröfuhart áhugafólk um hestamennsku sem leitar að gæðaeign á frábærum stað.
Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is