Magnús Már Lúðvíksson Löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna:
Vel skipulagðar og mikið endurnýjaðar tvær 3 herbergja íbúðir og bílskúr sem hefur verið innréttaður sem stúdíoíbúð, eignirnar eru á 2 fastanúmerum ásamt samþykkt byggingaráform að húsi á baklóð Hjallavegs 40
Allar eignirnar eru í útleigu með leigusamninga.
Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is
Eftir breytingar verður skráning eigna eftirfarandi:
0101: Íbúð á 1.hæð 55,7 fm
0201: Íbúð á 2. hæð 62,7 fm
0102: Teikningar af nýju húsi (2 íbúðir) + bílskúr (stúdíóíbúð) samtals:130,4 fm
Samtals: 264,4 fm
Skráning fyrir breytingar:
Hjallavegur 40, 0101 Íbúð, 51,9 m², 020101 Bílskúr 25,6 m², 020102 Geymsla 8,0 m² = 85,5
Fasteignamat 2026: 76.500.000
Hjallavegur 40, 0201 Íbúð, 48,5 m²
Fasteignamat 2026: 54.000.000 kr.
Samtals: 134 fm
Breytingar á framhúsi Breytingar á inngöngum og þvottahúsi 1. hæðar þar sem báðar hæðir í framhúsi fá sér inngang.
Með þessum breytingum verður engin sameign sem hefur mikla þýðingu fyrir afkomu af leigu og almennan rekstrarkostnað.
Eina tenging húsanna verður forstofa byggingarinnar sem tengist vesturhlið gamla hússins.
Nýbyggingin og allar breytingar á deiliskipulagi eru unnar af Nordic arkitektum og hafa teikningar verið samþykktar af byggingaryfirvöldum.
Núverandi áform gera ráð fyrir að nýbyggingin verði út timbri og klædd með álklæðningu.
það er kominn byggingarréttur en ekki búið að sækja um byggingarleyfi
Íbúð á 1 hæð: Að innan verið töluvert endurnýjað og má þar nefna gólfefni, eldhúsinnréttingu og baðherbergi.
Íbúð á 2. hæð: Nýtt gips, nýtt rafmagn, nýjar neysluvatnslagnir, nýjir ofnar og ofnalagnir, parket, flísar, eldhús og innihurðar.
Góð loftræsting í báðum íbúðum, kerfi með gegnumstreymi lofts.
Búið er að taka húsið mikið í gegn. Allar vatnslagnir, frárennsli, dren og rafmagn. Einnig er búið að endurnýja glugga, gler, þak að hluta og þakjárn o.fl.
Bílskúrinn hefur verið endurnýjaður frá grunni. Þar er nú björt og falleg fullbúin stúdíóíbúð. Í alrými er fullbúið eldhús og stofa. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi og vegghengt salerni og innréttingu undir handlaug. Gólfhiti er í íbúðinni. Stúdíóbúðin deilir þvottahúsi með íbúðinni.
Hönnun: Mjög hefur verið vandað til hönnunar og teikninga af einni bestu arkitektastofu landsins. Bæði eigendur og hönnuðir hafa lagt mikla vinnu í að nýta byggingarréttinn sem best. Auk þess mun kostnaður við bygginguna verða hagfelldur og byggingartími stuttur þar sem heimilt er að byggja úr timbri og því þarf hvorki stóra krana né önnur þung byggingartæki til framkvæmda.
Nýja húsið fær sér garð sem mun verða mjög skjólsæll. Það er einstaklega fallegt og fellur vel að bæði framhúsinu og öðru umhverfi.
Sér bílastæði verður út frá götustíg upp að nýja húsinu nr. 42. Auk þess mun innkeyrsla að framhúsinu fylgja neðri hæð hússins.
Nánari upplýsingar veitir:
Magnús Már Lúðvíksson, Löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 eða maggi@remax.is