RE/MAX & BJARNÝ BJÖRG KYNNA:Einstaklega skemmtilega 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í lyftuhúsi með stæði í bílakjallara. Eignin er skráð 139,4 fm samkvæmt FMR. Húsið stendur neðst í hverfinu og er langt frá nærliggjandi húsum og er því með óhindrað útsýni úr íbúð til suðurs og austurs, en einnig til vesturs úti á stórum suðursvölum.
Eign sem vert er að skoða !KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉRAllar nánari upplýsingar um eignina veita:
Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 eða á netfangið bjarny@remax.isNánar um eignina:Öll íbúðin er með slitsterku harðparketi, utan votrýma og forstofu. Allar innréttingar frá Brúnás.
Forstofa með flísum á gólfum og fataskápum.
Úr forstofu er komið inn í sjónvarpshol, sem er rúmgott og þaðan liggur gangur í önnur rými íbúðarinnar.
E
ldhús er með fallegri hvítri eldhúsinnréttingu og eldhúseyju.
Stofa, borðstofa og eldhús mynda stórt sameiginlegt rými, með óhindruðu útsýni. Úr stofu er útgengt á stórar suðursvalir.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi. Útgengt á austurvalir.
Barnaherbergi I er rúmgott og með skáp.
Barnaherbergi II er af sömu stærð og er með skáp.
Þvottaherbergi er rúmgott með hillum, vaskborði og flísalögðu gólfi.
Baðherbergi er allt flísalagt í hólf og gólf, með baðkari og sturtuklefa.
Sérbílastæði í bílakjallara. Bílskýlið er upphitað. Rafdrifin fellihurð með sjálfvirkum hurðaopnara.
Geymsla er á geymslugangi inn af vagna/hjólageymslu.
Bílastæði : Stórt bílaplan er við húsið sem rúmar 13 bíla og eru sérmerkt en aðeins 9 íbúðir eru í húsinu.
Góð staðsetning í suðurhlíð Úlfarsárdals. Einstakar náttúruperlur eru í göngufæri, Úlfarsárdalur, Úlfarsfell, Reynisvatn o.fl. Fjölmargir göngu- og hjólastígar bjóða uppá fjölbreytta möguleika til útivistar og tengja saman hverfin í nágrenninu.
Dalskóli er staðsettur á fallegum stað neðst í dalnum og er samrekinn leik- og grunnskóli auk frístundaheimilis. Um fimm mínútna ganga er inn á skólasvæðið án þess að fara þurfi yfir umferðargötu.
Í dalnum er einnig félagssvæði Fram, sem staðsett er við enda skólalóðarinnar.
Menningarmiðstöð og sundlaug og félagssvæði Fram í uppbyggingu. Nánar má lesa hér: https://reykjavik.is/ulfarsardalur
Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 eða á netfangið bjarny@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
__________________________
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk