101, Reykjavík (Miðbær)

Skúlagata 40B

67.900.000 KR
Fjölbýli
2 herb.
84 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 84 M²
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 1990
  • Lyfta
  • Bílskúr

LÝSING

Gylfi Jens og Guðbjörg Helga löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX kynna Skúlagötu 40B, 101 Reykjavík.
Björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýlishúsi með lyftu fyrir 60 ára og eldri við Skúlagötu í Reykjavík með sérstæði í upphitaðri bílageymslu Eignin er skráð 84,5 fm hjá Fasteignaskrá, þar af íbúðarhluti 69,5 fm og sérstæði í bílageymslu er skráð 15,0 fm. Rúmgóð verönd með ýmis tækifæri er við íbúðina. Í sameign er aðstaða með heitum potti, sauna og þrektækjum. 

        NÚVERANDI SKIPULAG: 
Forstofa, sjónvarpshol, stofa, eldhús, baðherbergi, herbergi, hellulögð verönd og þvottaherbergi/geymsla innan íbúðar. Sérstæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu.

        NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Gólfefni íbúðar er dúkur.
Forstofa: Rúmgóð með fataskáp.
Sjónvarpshol: Á ganginum er sjónvarpshol
Stofa: Björt og rúmgóð með útgengi út á hellulagða verönd (í eignaskiptasamningi er skilgreindur 36 fm sérafnotaflötur)
Eldhús:Viðarinnrétting, flísar á milli skápa.Eldavél og vifta. Opið inn í Stofu/borðstofu
Baðherbergi: Baðherbergið er með innréttingu með vaski og sturtu. 
Herbergi: Með rúmgóðum skápum eftir einum vegg. Gluggi.
Þvottahús/geymsla: Rúmgott og er staðsett innan íbúðar. Dúkur á gólfi.
Sérbílastæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. Stæðið er nr. A43. 

       SAMEIGN HÚSA NR. 40, 40A OG 40B 
  • þvottaaðstaða fyrir bílastæðaeigendur í bílastæðahúsi hússins.
  • Sameiginleg hjólageymsla.
  • Sameiginleg bílastæði í porti milli húsanna með innkeyrslu frá Klapparstíg (íbúar mega leggja í öll þau stæði) og einnig eru fleiri stæði neðan húss nr. 40 þar sem ekið er inn í bílastæðahús sem er á jarðhæð.
  • Sameiginlegt þurrkherbergi, stórt og með lökkuðu gólfi (í kjallara 40B)
  • SPA -aðstaða með heitum potti, sauna og þrekhjóli (nr 40)
  • Samkomusalur sem er leigður til viðburða (nr 40)
  • Húsvarðaríbúð sem er í útleigu (nr 40)
  • Innangegnt er á milli húsanna þriggja gegnum bílastæðahús. Lyklakóða eða rafmagnsdropa þarf til að opna dyr.
      FRAMKVÆMDASAGA
  • Nýlega var húsið múrviðgert og málað að utan (HÚSFÉLAG)
  • Þak, þakrennur og niðurföll endurnýjuð (HÚSFÉLAG)
  • Búið er að endurnýja alla hitaveituofna í íbúðinni (séreign)
Lóðin er falleg með tyrfðum flötum og hellulögðum stéttum með hitalögnum undir og næg bílastæði eru á lóð hússins Klapparstígs megin og einnig neðan húss Skúlagötumegin.

Félagsheimili Reykjavíkurborgar er í fimm mínútna göngufjarlæð að Lindargötu 59, en þar er hægt að vera í áskrift með heitan mat í hád7-)eginu og njóta starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar sjá nánar hér: https://reykjavik.is/lindargata-59
Kaupandi þarf að vera amk 60 ára, og skrá sig í Félag eldri borgara í Reykjavík, sé hann ekki þegar í félaginu. Ársgjald er um 6000 kr (+

Samantekið er þetta afar sjarmerandi og skemmtileg 2ja herbergja íbúð á vinsælum stað í miðborginni með einkabílastæði í lokaðri bílageymslu.

      ALLAR UPPLÝSINGAR VEITA:
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður  í netfanginu [email protected] og síma 822 5124 
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfanginu [email protected] og síma 897 7712