Í starfi mínu sem löggiltur fasteignasali legg ég áherslu á persónulega þjónustu, fagmennsku og traust. Ég legg mikið upp úr góðum samskiptum og að fylgja hverju verkefni vel eftir frá fyrsta samtali þar til viðskiptum er lokið. Við sölu fasteigna legg ég sérstaka áherslu á vandaða markaðssetningu, mikinn sýnileika og að skapa sem bestar forsendur fyrir góðri niðurstöðu. Markmið mitt er að veita hverjum viðskiptavini trausta ráðgjöf og þjónustu sem skilar árangri.
Utan fasteignasölunnar hef ég stundað fimleika frá þriggja ára aldri og er í dag afreksmaður og landsliðsmaður í íþróttinni. Fimleikarnir hafa kennt mér aga, markmiðssetningu, vinnusemi og að gefast ekki upp þegar á reynir. Þessa nálgun tek ég með mér inn í starfið og legg metnað í að ná árangri bæði í íþróttinni og fasteignasölunni.