RE/MAX & SALVÖR ÞÓRA Lgf. & HERA BJÖRK Lgf. & kynna :
( Salvör: 844-1421 / salvor@remax.is | Hera Björk: 774-1477 / herabjork@remax.is) Rúmgott og fallegt 7 herbergja raðhús við Vesturás 22 í Selási. Eignin er skráð samtals 204,3 fm og skiptist í tvær hæðir og bílskúr. Húsið er með fjögur rúmgóð svefnherbergi, bjart sjónvarpshol, rúmgóðar stofur, nýlegt eldhús, sér þvottahús, 30,3 fm bílskúr og stóran, sólríkan og skjólgóðan pall í bakgarðinum.
Um er að ræða einstaklega góða fjölskyldueign í grónu og vinsælu hverfi, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Selásskóli og leikskóli eru í aðeins nokkurra mínútna göngufæri, auk þess sem stutt er í Árbæjarlaug og öflugt íþrótta- og tómstundastarf Fylkis. Verslanir og þjónusta eru í næsta nágrenni og útivistarparadísin í Elliðaárdal er steinsnar frá, með fallegum göngu- og hjólaleiðum.
** Fjögur rúmgóð svefnherbergi + sjónvarpshol sem auðvelt er að breyta í fimmta svefnherbergi.
** Nýlegt og fallegt eldhús með quartz-borðplötu og notalegum borðkrók.
** Stór, sólríkur og skjólgóður pallur – frábært útisvæði fyrir alla fjölskylduna.
** 30,3 fm bílskúr og gott bílaplan með stæðum fyrir um þrjá bíla.
** Frábær fjölskyldustaðsetning – örstutt í Selásskóla, leikskóla, Árbæjarlaug, Fylki og Elliðaárdalinn.Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á síðustu árum, m.a. hefur verið skipt um þakjárn og þakpappa, eldhús endurnýjað, neysluvatnslagnir endurnýjaðar að hluta, nýtt gólfefni lagt á efri hæð og fataskápar í svefnherbergjum endurnýjaðir.SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT ásamt öðrum upplýsingum um eignina SAMSTUNDIS** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita: Salvör Þóra, lgf.í síma 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is Hera Björk, lgf. í síma 774-1477 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið herabjork@remax.isNánari lýsing á eign:
Um er að ræða rúmgott og vel skipulagt 7 herbergja fjölskylduhús á tveimur hæðum í fjölskylduvænu hverfi og í nálægð við frábær útivistarsvæði.
Heildar birtir fermetrar eignarinnar skv. HMS eru alls 204,3 fm og skiptast þannig:
skiptast í
neðri hæð (76,8 fm),
efri hæð (97,2 fm) og
bílskúr (30,3 fm).
Neðri hæð – 76,8 fm: Anddyri, endurnýjað eldhús, gestasnyrting, stofa og borðstofa.
Efri hæð – 97,2 fm: Hol, 4 svefnherbergi, sjónsvarpshol sem hægt að breyta í herbergi, baðherbergi og þvottahús. Frá holi er farið út á flísalagðar svalir.
Bílskúr – 30,3 fm: Rúmgóður bílskúr með sérinngangi, heitu og köldu vatni og góðri bílskúrhurð.
Aðkoman að húsinu er snyrtileg með hellulagðri stétt og heimkeyrslu. Snjóbræðsla er að hluta til undir hellulögn og gott bílastæði er á lóðinni fyrir framan húsið, með plássi fyrir um þrjá bíla. Bakgarðurinn er stór, sólríkur og skjólgóður með rúmgóðum palli sem myndar notalegt útisvæði fyrir fjölskylduna og hentar einstaklega vel fyrir grill, útiveru og góðar samverustundir
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagnaNEÐRI HÆÐ:
Anddyri: Flísalagt anddyri með fataskáp. Framhliðar skápahurða og skúffa hafa verið filmaðar.
Eldhús: Bjart og rúmgott eldhús með nýlegri innréttingu og fallegri quartz-borðplötu. Gott vinnu- og skápapláss, spanhelluborð, gufugleypir og bakaraofn í vinnuhæð ásamt tengi fyrir uppþvottavél. Flísar eru á vegg að hluta fyrir ofan borðplötu og nýlegar parketflísar á gólfi. Í eldhúsinu er jafnframt notalegur borðkrókur fyrir fjölskylduna.
Gestasnyrting: Inn af anddyri er snyrtileg gestasnyrting með góðri innréttingu. Framhliðar skápahurða eru filmaðar. Flísar á gólfi og innbyggð halogenlýsing í lofti.
Stofa og borðstofa: Bjartar og rúmgóðar stofur í opnu og góðu samverurými. Gott pláss er fyrir bæði setustofu og góða borðstofu. Flísar á gólfi. Úr stofunni er gengið beint út á stóran og skjólgóðan pall í bakgarðinum, sem tengir inni- og útisvæði hússins skemmtilega saman.
Stigi: Parketlagður stigi með fallegu handriði liggur upp á efri hæð hússins.
EFRI HÆÐ:Hol: Bjart og rúmgott parketlagt hol með góðri lofthæð og innbyggðri halogenl lýsingu að hluta.
Svalir: Frá holi er gengið út á flísalagðar svalir.
Þvottahús: Sér þvottahús með góðri innréttingu þar sem þvottavél og þurrkari eru í þægilegri vinnuhæð. Gott skápa- og skúffupláss, vaskur og flísar á gólfi.
Sjónvarpshol: Bjart og rúmgott parketlagt sjónvarpshol sem nýtist vel sem annað samverurými fjölskyldunnar. Auðvelt væri að breyta rýminu í fimmta svefnherbergið, heimaskrifstofu eða annað eftir þörfum.
Svefnherbergi (4): Svefnherbergin eru fjögur, öll rúmgóð og björt, með nýlegum fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með flísalagðri sturtu, góðri innréttingu og handklæðaofni. Flísar á gólfi.
Staðsetning og nærumhverfiVesturás 22 er einstaklega vel staðsett fjölskyldueign í Selási, þar sem daglegt líf fjölskyldunnar getur verið bæði þægilegt og einfalt. Selásskóli og leikskóli eru í aðeins nokkurra mínútna göngufæri og stutt er í Árbæjarlaug og íþróttasvæði Fylkis, þar sem boðið er upp á fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf. Verslanir og önnur þjónusta eru í næsta nágrenni og örstutt er í Elliðaárdalinn og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir, sem gera staðsetninguna sérstaklega skemmtilega fyrir fjölskyldur sem kunna að meta útiveru og gott nærumhverfi.
Hér fer vel saman rúmgott fjölskylduhús, góður bílskúr, stórt og skjólgott útisvæði og frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI!Endurbætur síðustu ára2024- Eldhús innrétting endurnýjað.
- Parket flísar settar á eldhúsgólf
- Neysluvatnslagnir í eldhúsi endurnýjaðar og settar upp á efri hæð og útvegg að bakgarði en eru ótengdar.
- Þakjárn og þakpappi endurnýjað.
- Lofttúður og þakkantur endurnýjað.
- Skipt um borðaklæðningar að hluta.
- Arinn og skorsteinn fjarlægðir.
- Skipt um loftklæðningu og einangrun að hluta.
- Skipt um ofn í barnahergi.
2023- Nýtt gólefni á efri hæð.
- Fataskápar í svefnherbergjum endurnýjaðir.
2021 eða fyrr- Bætt við skjólgirðingu í bakgarð
- Frárennsli myndað um 2021 af fyrri eigendum og þá metið í lagi
Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita: Salvör Þóra, lgf.í síma 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is Hera Björk, lgf. í síma 774-1477 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið herabjork@remax.is-----------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?Við höfum starfað við fasteignasölu samanlagt í yfir 19 ár.
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur.
Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga. Hafðu samband í dag!-
Salvör Þóra, lgf.í síma
844-1421 eða
salvor@remax.is-
Hera Björk, lgf. í síma
774-1477 eða
herabjork@remax.is