Gylfi Jens og Guðbjörg Helga hjá RE/MAX kynna: Björt og vel skipulögð 4 herbergja íbúð með sérinngangi á efri hæð í tvíbýlishúsi við Langholtsveg 35, 104 Reykjavík og stórum grónum sameiginlegum bakgarði með gróðurhúsi. Sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla er í kjallara. Stórir kvistar að götu með 4 gluggum og þremur bakmegin gefa hæðinni fulla lofthæð og eykur nýtingarmöguleikana til fulls. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús, sérgeymsla og sameign/geymsla hinnar íbúðarinnar. Íbúðin er laus fljótlega.Eignin er skráð 70,7 fm, þar af er sérgeymsla 4,8 fm. Eignin skiptist í forstofu, stiga, gang, eldhús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og geymslu.
>>Sæktu sjálfvirkt söluyfirlit hér<< >>Skoðaðu íbúðina betur í þrívíðri sýn (3-D)<< (Smelltu á stólinn niðri til vinstri og þá fjarlægirðu húsgögnin með gervigreindaraðstoð)
Nánari lýsing: Gólfefni íbúðar er viðardparket fyrir utan eldhús og baðherbergi þar sem eru flísar.
Forstofa: Sérinngangur. Komið er inn í flísalagða forstofu með útskot þar sem eru skóhillur og fatahengi. Ljóst eldra teppi í stiganum.
Gangur: Tengir saman öll rými íbúðarinnar. Rafmagnstafla og innfellt fatahengi staðsett næst baðherbergi.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt með gluggum til tveggja átta.
Eldhús: Hvít innrétting, borðplata með viðaráferð. Flísar á milli skápa, bakaraofn undir borði, keramikhelluborð og vifta. Stæði fyrir uppþvottavél.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu. Hvít innrétting með tveimur skúffum og handlaug. Upphengt salerni. Opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með góðu skápaplássi. Innfelldir skápar eftir einum vegg. Gluggi út í garð.
Svefnherbergi II: miðjuherbergið, nettast af þeim. Gluggi út í garð
Svefnherbergi III: Rúmgott. Gluggi út í garð
Kjallari: Sérgeymsla innst í kjallara með glugga, og sameiginlegt þvottahús, auk annars sameignarrýmis.
Sameign: Mjög stór gróinn garður er aftan við húsið. Gróðurhús í garði tilheyrir íbúðinni.
Sjarmerandi og skemmtileg íbúð þar sem fermetrarnir nýtast einstaklega vel. 3 rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni ásamt stofu/borðstofu.
Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla og skóla og stuttur gangur í Laugardalinn.
Allar nánari upplýsingar veita:
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður í netfanginu gylfi@remax.is og síma 822 5124 og
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfanginu gudbjorg@remax.is og síma 897-7712