RE/MAX Ísland logo
Skráð 14. nóv. 2025
Söluyfirlit

Víkurás 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
79.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
729.219 kr./m2
Fasteignamat
52.600.000 kr.
Brunabótamat
36.570.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Bjarni Blöndal
Bjarni Blöndal
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1985
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2053444
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
upprunalegar
Raflagnir
upprunalegar
Frárennslislagnir
upprunalegar
Gluggar / Gler
endurnýjað að hluta
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163 netfang: bjarni@remax.is) kynnir: Falleg og björt endaíbúð á 4. hæð í snyrtilegu fjölbýli á þessum vinsæla stað í Árbænum. Íbúðin er tveggja herbergja, skráð 57,6fm með stæði í sameiginlegri bílageymslu 21,8fm, samtals 79,4fm. Nýlega er búið að skipta um eldhúsinnréttingu. Sér geymsla er á hæðinni ásamt sameiginlegu þvottahúsi. Stutt er i grunn- og leikskóla. Náttúrperlur Elliðaárdals og fleiri útivistarsvæða ásamt Árbæjarlaug og íþróttasvæði Fylkis eru skammt undan. 

Nánari lýsing:
Forstofa: með góðum fataskáp sem nær upp í loft, parket.  
Eldhús: með nýlega endurnýjaðri innréttingu úr IKEA með góðu skápaplássi, spanhelluborð og bakaraofn í vinnuhæð (bæði virkar með Samsung appi), vifta, flísar á milli skápa og á vegg, tengi fyrir uppþvottavél, eyja með borðplötu sem er með framlengingu sem er auðvelt að smella upp og setja niður, flísar á gólfi.
Stofa: Eldhús og stofa í opnu parketlögðu rými, úr stofu er gengið út á skjólgóðar suðursvalir, fallegt útsýni er frá stofu, gluggar á 2.vegu.
Svefnherbergi: með rúmgóðum fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, innrétting undir vaski og skápur fyrir ofan salerni, baðkar með sturtuaðstöðu.
Sér geymsla fyrir íbúðina er á hæðinni, inn af þvottahúsi.
Stórt sameiginlegt þvottaherbergi er á hæðinni með vél í sameign íbúanna.
Hjólageymsla er á jarðhæð.

Húsið er klætt að utan og viðhaldslétt. Árið 2019 var gler endurnýjað þar sem þess var þörf í íbúðum, gluggar málaðir og svalir múraðar og málaðar. 2023 voru eldvarnarhurðir fyrir íbúðir endurnýjaðar. 2024 nýr dyrasími með myndavél. 2025 var bílskýli tekið í gegn. Sameign er teppalögð og hefur fengið gott viðhald. Snjóbræðsla er í stétt upp að húsinu og í innkeyrslu í bílageymsluna. Fyrirhugaðar áframhaldandi  framkvæmdir en hússjóður stendur sterkur og á vel fyrir þeim.

Þetta er björt, opin og vel skipulögð íbúð (ásamt stæði í lokuðu bílskýli) í góðu fjölbýli á vinsælum stað í Árbænum. Örstutt í leik- og grunnskóla, íþróttir og útivistarsvæði.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is. 

Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Byggt 1992
2.2 m2
Fasteignanúmer
2053444
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
27
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
5.970.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Rofabær 43
110 Reykjavík
82 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
718 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Rekagrandi 1
107 Reykjavík
78.6 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
761 þ.kr./m2
59.800.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Ásvallagata 55
101 Reykjavík
56.2 m2
Fjölbýlishús
211
1,066 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hjallavegur 14
104 Reykjavík
55.2 m2
Tvíbýli
211
1,040 þ.kr./m2
57.400.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin