Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir : Einkar fallega og bjarta 120,5 fm 3 herbergja íbúð á 2 hæð með sérinngangi ásamt bílastæði í lokaðri bílageymslu við Frostafold 41, 112 Reykjavík. Íbúðin sjálf er skráð í Þjóðskrá 97,4fm og bílskýli 23,1fm.
Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D: // Sérinngangur.
// Mjög stór herbergi.
// 2 merkt stæði fyrir utan og stæði í bílastæðahúsi.
// Búið að fara í mikið af framkvæmdum utan hús.
// Hægt að færa eldhúsið inn í stofuna og setja 3 herbergið.
// Mjög stutt í alla þjónustu.
Nánari lýsing:Forstofa: með gólfdúk, skáp og góðu fatahengi.
Eldhús: er parketlagt með hvítri eldhúsinnréttingu, mikið skápapláss.
Borðstofa og stofa: rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á suðvestursvalir.
Hjónaherbergi: er parketlagt, rúmgott með góðum fataskápum.
Barnaherbergi: er parketlagt, rúmgott með góðum fataskápum.
Baðherbergi: er með flísum á gólfi og að hluta til með flísum á veggjum. Einnig er sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél.
Geymsla: Sérgeymsla fyrir íbúðina er í sameign á jarðhæð.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Bílskýli: Sameiginlegt bílskýli sumra. Bílastæði í bílskýli er nr.4. Í bílskýli er góð aðstaða til þess að þrífa bíla.
Eigninni fylgja einnig 2 merkt bílastæði úti.
Viðgerðir á húsinu:Farið var í stórar utanhússframkvæmdir á árunum 2020-2021, þar sem húsið var múrviðgert og málað, gafl klæddur með álklæðningu, sólskáli endurbyggður, skipt um flesta glugga í húsinu, þakkantur endurnýjaður, þak yfirfarið, svalagólf lagfært, handrið á svölum endurbyggt sunnanmegin og lagfært norðanmegin
Einnig var farið í lagnagrind og ofnakerfi yfirfarið í öllum íbúðum. Allir ofnakranar eru nýir í 41 og því auðvelt að skipta út ofnum ef fólk vill fara í það.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.isVegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.