Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð á 2.hæð með sérinngangi í góðu fjölbýlishúsi í Breiðuvík í Grafarvogi. Búið er að endurnýja á síðustu árum gólfefni á öllum rýmum, baðherbergis og þvottaherbergis innréttingar og eldhús. Íbúðin er á enda og því sérlega björt og rúmgóð með gluggum í þrjár áttir. Samkvæmt teikningum var íbúðin skipulögð með sér baðherbergi og sér þvottaherbergi en búið er að opna á milli og skemmtilegan hátt sem gerir bæði rýmin mun rýmri með betri vinnuaðstöðu. Út frá alrými er gengið út á suðursvalir.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Nánari lýsing eignar: Húsið er staðsteypt á þremur hæðum. Utanáliggjandi stigahús er við húsið og því allar íbúðir með sérinngang. Aðeins eru tvær íbúðir á hæð í hverju stigahúsi. Góð bílastæði eru fyrir framan húsið sem er innsta hús í litlum botnlanga. Gengið er upp eina hæð frá bílastæði.
Forstofa: Gengið er inn um sérinngang inn í góð forstofu með dökkum flísum á gólfi og góðum fataskáp sem nær upp í loft. Hurð með glerglugga skilur á milli forstofu alrýmis íbúðarinnar.
Stofa + borðstofa: Komið er inn úr forstofu inn í hol fyrir framan herbergi íbúðarinnar, inn af holinu er rúmgott alrými með fallegu og vönduðu harðparketi á gólfi. Stofan rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengt er út á góðar suðursvalir. Opið er yfir að eldhúsi.
Eldhús: Eldhús var endurnýjað fyrir nokkrum árum á mjög fallegan og smekklegan hátt. Innrétting er í L með efri og neðri skápum + eyja. sérlega mikið skápapláss og vinnupláss er í innréttingunni. Innréttingin er hvít með fallegri borðplötu í gráu marmara útliti sem gengur upp á vegg á milli efri og neðri skápa. lýsing er undir efri skápum. Fallegt vandað harðparket er á gólfi.
Baðherbergi + þvottaherbergi: Eins og áður segir í lýsingu þá voru baðherbergi og þvottaherbergi í tveimur aðskildum rýmum en búið er að opna á milli og búa þannig til betra vinnurými fyrir bæði rýmin. Dökkar flísar eru á gólfi og ljósar flísar eru á veggjum. Sturta með gleri er í enda rýmisins. Undir vaski og við hlið vasks er góð innrétting í ljósum lit. I kringum þvottavélina og þurrkarann eru hvítir skápar sem ná upp í loft með miklu skápa og geymslurými. Gert er ráð fyrir vélum í vinnuhæð. smá útskot er á bak við vegg.
3 x svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú í eigninni, öll með fallegu vönduðu harðparketi á gólfi og góðum fataskápum sem ná upp í loft.
Geymsla: í sameign er sérlega rúmgóð geymsla með glugga og góðum hillum.
Sameign: í sameign á jarðhæð fyrir framan geymsluganginn er hjóla- og vagnageymsla.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is