Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali á RE/MAX fasteignasölu kynnir í einkasölu:Vel skipulögð 101,9 fm þriggja herbergja, björt og rúmgóð endaíbúð á jarðhæð við Álfkonuhvarf 41, 203 Kópavogi. Íbúðin er með sérverönd með timbur skjólveggjum sem snýr suðvestur. Með íbúðinni fylgir sér stæði í bílageymslu.Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3DNánari lýsing: Komið er inn í forstofu með fataskáp og flísar á gólfi. Gengið er inn í bjart og stórt alrými með eldhús, stofu og borðstofu. Eldhúsinnrétting er meðfram einum vegg með bæði efri og neðri skápa, óbein lýsing er undir efri skápum. Gert er ráð fyrir ísskáp þar við hlið og uppþvottavél inn í innréttingunni. Vaskur og helluborð með kolasíu viftu þar fyrir ofan og gott vinnupláss þar við hlið. Eyjan er með skúffum og bökunarofn, gott vinnu-og borðpláss. Hægt er að hafa þrjá stóla við eyjuna. Á gólfi inn í eldhúsi eru sömu flísar og eru á forstofunni. Stofan og borðstofan eru með harðparket á gólfi. Gluggar á tveimur hliðum gefa mikla og góða birtu inn. Út frá borðstofu er gengið út á stóra verönd sem snýr í suð-vestur, aflokuð með timbur skjólveggjum. Svefnherbergis gangur og svefnherbergin tvö eru með sama harðparket á gólfi og er inn í stofu og borðstofu. Herbergin tvö eru bæði mjög rúmgóð og með fataskápum. Í öðru þeirra eru gluggar í tvær áttir. Baðherbergið er með flísum á gólfi og gólfhita og flísar upp hluta af veggjum. Bæði baðkar og sér sturtuklefi. Innrétting er með handlaug, neðri skáp og skúffum. Spegill þar fyrir ofan með skáp þar við hlið. Upphengt salerni og handklæðaofn. Inn af baðherbergi er svo sér þvottahús með opnanlegum glugga, og innréttingu til að hafa þvottavél og þurrkara ofan á, í vinnuhæð. Hillur þar fyrir ofan og snúrur þar á móti til að hengja upp þvott.
Parket og hurðar inn í íbúð var endurnýjað í maí 2025, á sama tíma var íbúðin máluð. Bakaraofn var endurnýjaður fyrir ca. 3 árum.
Sérgeymsla: Sérgeymsla er í sameign og er hún 7,0 fm.
Bílageymsla: Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu. Þriggja fasa rafmagn er við bílastæðið.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Nánari upplýsingar veitir: Magnús Már Lúðvíksson
Löggiltur fasteignasali
S: 699-2010
E: Maggi@remax.isVegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef um lögaðila er að ræða) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-