RE/MAX, Vilhelm Patrick Bernhöft löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu:
EFRI SÉRHÆÐ MEÐ SÉRINNGANG Í KIRKJUTEIG 15 Í 105 REYKJAVÍK . Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 131,5 fm þar af er bílskúr 24,5 fm, nánar tiltekið eign með fastanúmerið 201-8842 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Um er að ræða sérhæð á Kirkjuteig 15 í Reykjavík ásamt risi. Húsið er mjög vel staðsett, á rólegum stað í í 105 Reykjavík. Örstutt er í bæði skóla og leikskóla, sundlaug og World Class æfingastöð.
Risið er skráð séreign íbúðarinnar og er með lágri lofthæð. Hækkun á þaki var samþykkt árið 1987 og þarf að endurnýja byggingarleyfið. En mögulegt væri þá að stækka íbúðina um 63,3 fm skv. þeim teikningum.
Búið er að endurnýja nokkra glugga í íbúðinni.
Allar nánari upplýsingar veitir Vilhelm Patrick Bernhöft löggiltur fasteignasali s: 663-9000 eða á
vilhelm@remax.isNánari lýsing:Forstofa. Komið er inn forstofu og gengið upp teppalagaðan stiga upp á efri sérhæðina.
Stofa/borðstofa. Opnar og bjartar samliggjandi stofur með parketi á gólfi
Eldhúsið er með innréttingum frá IKEA og parketi á gólfi.
Baðherbergið er með baðkari, salerni og innréttingu með vaski.
Svefnherbergi. Gengið er inn í svefnherbergið frá þegar komið er upp á hæðina í forstofunni. Parket á gólfi.
Hjónaherbergið er bjart og rúmgott með dúk á gólfinu.
Þvottahús og geymsla. Er í sameign í kjallara
Bílskúrinn er á baklóðinni. Byggður úr holsteini og þarfnast viðhalds.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk