Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:Bjarta og fallega
72,00 m² íbúð í góðu fjölbýli byggðu 2014 á Völlunum í Hafnarfirði. Eignin státar af rúmgóðum og björtum rýmum, tveimur svefnherbergjum, snyrtilegu baðherbergi og góðri geymslu með glugga sem býður upp á möguleika á að nýta sem þriðja herbergið. Gólfefni eru harðparket og flísar. Eignin er í vesturenda hússins og veitir því fallega sýn til sjávar.
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagnaÚtgengt er á rúmgóðar svalir með útsýni. Íbúðin er vel staðsett í rólegu umhverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, s.s. matvöruverslanir, skóla og leikskóla.
Nálægð við Ásvallalaug og íþróttasvæði Hauka gerir staðsetninguna enn eftirsóknarverðari fyrir fjölskyldur.
Næg bílastæði eru við húsið og sameiginlegur garður/leiksvæði á bak við húsið eykur fjölskylduvæna eiginleika eignarinnar.
SMELLTU HÉR fyrir ALLAR upplýsingar um eigninaNánari lýsing eignar:Forstofa: Flísalögð forstofa með góðum fataskápum.
Stofa og borðstofa: Bjart og opið rými með harðparketi á gólfi. Útgengt er á rúmgóðar útsýnis svalir sem bjóða upp á gott útsýni.
Eldhús: Eldhúsið er með smekklegri innréttingu, flísum á milli efri og neðri skápa og sérsmíðuðum hillum í horni við ísskáp. Harðparket er á gólfi.
Baðherbergi: Flísalegt á gólfi og veggjum með innréttingu, sturtuklefa og handklæðaofni.
Herbergi I / Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Herbergi í góðri stærð með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Geymsla / Þriðja herbergið: Geymsla með glugga sem býður upp á möguleika á að nýta sem þriðja herbergið, en hillur á myndum fylgja ekki með. Harðparket á gólfi.
Sameign og umhverfi:
Sameiginlegt þvottahús: Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús fyrir íbúa hverrar hæðar fyrir sig, þar sem hver íbúð er með sér tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjóla- og vagnageymsla: Í kjallara hússins er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæði: Næg bílastæði eru við húsið fyrir íbúa og gesti.
Garður og leiksvæði: Sameiginlegur garður og leiksvæði er á bak við húsið, sunnan megin.
Um er að ræða vel staðsetta eign í fjölskylduvænu hverfi í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu eins og matvöruverslanir, skóla, leikskóla, Ásvallalaug og íþróttasvæði Hauka.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum?
Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.
Heimasíða RE/MAXGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk