Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Flott, vel skipulögð, björt og mikið endurnýjuð fimm herbergja 108,5 fm. efri hæð með sérinngangi í þríbýlishúsi við Drápuhlíð 43, 105 Reykjavík. Bílskúrsréttur og fyrir vikið góð bílastæði við húsið fyrir eignina.
Árið 2018, var skipt um allar innréttingar, hurðir, gólfefni og baðherbergi endurnýjað í íbúðinni ásamt breytingum á skipulagi. Árið á undan, 2017 var skipt um þakjárn og þakpappa á þaki. Sameiginlegar tröppur múrviðgerðar og lagfærðar árið 2025 og árið 2026 var brunnur við hús hreinsaður.
Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.isNánari lýsing: Gengið er inn um sérinngang upp steinsteyptan og teppalagðan stiga upp að hæðinni. Stór og flottur gluggi gefur góða birtu inn. Í anddyri á hæðinni er líka gluggi sem gefur góða birtu inn og harðparket á gólfi, þar er aðgengi inn í rými sem var áður gestasnyrting en breytt var í sér þvottahús með flísum á gólfi, gluggi er inn í því rými. Þar fyrir framan er setbekkur með geymsluhólf og nýr fataskápur frá HTH þar við hlið með spegla rennihurðum. Gengið er inn í hol með harðparket á gólfi sem leiðir þig í alla vistaverur íbúðarinnar. Eldhúsið er með L-laga HTH innréttingu með hvíta Corian eldhús borðplötu, undirlímdum vaski og spanhelluborði. Innbyggð uppþvottavél, bakaaraofn er í vinnuhæð og búrskápur og tengi og aðstaða fyrir tvöfaldan ísskáp. Gott skápa- og skúffu pláss. Borðkrókur er með L-laga setbekk með geymslupláss undir og skáp vegg til að aðskilja rými. Tveir stórir gluggar gefa góða birtu inn í eldhúsið og rýmið í heild, opnanlegur gluggi er á öðrum þeirra. Gólfhiti er á bæði eldhúsi og inn í anddyri. Stofan er mjög björt og rúmgóð með harðparket á gólfi og með útgengi út á svalir sem vísa til suðurs, sjónvarpsstofa er inn af stofu með hljóðvistar plötum á einum vegg (auðvelt væri að breyta því rými í fjórða svefnherbergið fyrir þá sem það þurfa) Barnaherbergið við stofu er með harðparket á gólfi og innbyggða rennihurð, rúmgott og bjart. Barnaherbergi tvö er stærra, þar er fataskápur og harðparket á gólfi. Einn veggur þar með fallegt veggfóður meðfram heilum vegg. Hjónaherbergið er mjög rúmgott og með harðparket á gólfi. Fataskápar á tveimur veggjum, gott skápapláss og útgengi er þaðan út á sömu svalir og eru frá stofu, svalir til suðurs. Baðherbergið er með flísum á gólfi og á veggjum, þar er baðkar með sturtu aðstöðu, glerþili.
Hvít baðinnrétting með handlaug og skúffum, upphengt salerni þar við hlið og handklæða ofn þar á móti. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu, og gólfhiti á gólfi. Frá inngangi á neðri hæð er gengið inn í sameign, niður steyptar tröppur, þar er sameiginlegt þvottahús og sér geymsla íbúðar.
Á lóðinni eru næg bílastæði fyrir bæði efri og neðri hæð, og sameiginlegur geymsluskúr sem efri og neðri hæð nýta sem hjóla og geymslu skúr, en báðar þessar eignir eru með bílskúrsrétt skv. eignaskiptasamningi. Bílskúrsrétt þarf ávallat að fá að virkja aftur hjá byggingarfulltrúa ef til þess kæmi.
Falleg íbúð á flottum og fjölskylduvænum stað í Hlíðunum, húsfélag er nýlega stofnað og gott samkomulag er milli íbúa í húsinu að sögn seljenda.
Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali, í síma
661-6056 / gulli@remax.is
Gunnar Sverrir, löggiltur fasteignasali, í síma
862-2001 / gunnar@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700
af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-