RE/MAX Ísland logo
Opið hús:09. júní kl 16:00-17:00
Skráð 6. júní 2026
Söluyfirlit

Sæviðarsund 9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
98.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
78.900.000 kr.
Fermetraverð
799.392 kr./m2
Fasteignamat
72.550.000 kr.
Brunabótamat
56.350.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Löggiltur fasteignasali / Viðskiptafræðingur
Byggt 1967
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2018264
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
endurnýjað innan íbúðar.
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Sjá ástandsskýrslu
Þak
2015 endurnýjuð klæðning, rennur, þakkanntur
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita/sérhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna Sæviðarsund 9, 104 Reykjavík.
Björt og skemmtileg 3ja herbergja íbúð með sérinngangi og góðum suðursvölum á 1. hæð í fjórbýlishúsi sem er teiknað af Kjartani Sveinssyni.Einhalla þak er á húsinu og eru inngangar í tvær íbúðir á hvorri hlið hússins. Skráð heildarstærð eignarinnar er 98,7 fm. íbúðarhlutinn er 78,2 fm og í innangengum kjallara er sérþvottaherbergi/geymsla 13 fm og sérgeymsla 7,5 fm. Húsið er frábærlega staðsett í þessu vinsæla hverfi, og er fljótlegt að koma sér út á stofnæðar höfuðborgarsvæðinsins, leikskóli, grunnskóli og menntaskóli eru í hverfinu, verslanir og öll þjónusta er sömuleiðis í göngufjarlægð. Einstaklega rólegt umhverfi er við húsið, græn svæði, göngu/hjólastígar og leikvöllur. Mjög rúmt er kringum húsið og eru 8 bílastæði á lóðinni auk stæða við götuna.

Nánari lýsing:  
Gengið er upp nokkrar tröppur að sérinngangi íbúðarinnar. 
Viðarparket á herbergjum, stofu og gangi. Flísar á votrýmum og forstofu.

Forstofa: Flísar á gólfi, fatahengi og skóhillur á vegg gengt inngangi. Læsanleg hurð með aðgengi niður í kjallara, tröppur eru bakvið hurðina og sorplúga á vegg miðja leið niður. 
Hol:  Opið við stofu, gluggi, þarna er tilvalið að setja upp kósý leshorn eða heimaskrifstofu. Á vegg við eldhús er innbyggt fatahengi með rennihurð.  
Stofa/borðstofa: Stofan snýr inn að garðinum og er rúmgóð. Rúmgóðar flísalagðar og skjólgóðar suðursvalir. Svalahurðin er með kattalúgu. Screen rúllugardínur. 
Eldhús: Nýleg svört innrétting með viðarborðplötu. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél, helluborð, gufugleypir, bakaraofn, stór og góður vaskur.  Lýsing er undir efri skápum. 3 eikarvegghillur. Gráar flísar á gólfi. 
Svefnherbergjagangur: Gangur með eikarhurð svo hægt er að loka þeim hluta frá aðalrými íbúðar. Tvö svefnherbergi og baðherbergi eru við ganginn.
Herbergi I: Opnanlegur gluggi að svölum. Fataskápar eftir einum vegg.  
Herbergi II: Frekar nett en nýtist þó mjög vel hjá núverandi eigendum. Opnanlegur gluggi.
Baðherbergi:  Endurnýjað baðherbergi. Gólfhiti og flísar á gólfi. Dökkgrá innrétting með stórri handlaug og tveimur skúffum. Hár veggskápur. Baðkar með sturtuaðstöðu og tveimur sturtuhengjum. Vegghengt salerni. Hvítur handklæðaofn. Gólfh
Sérþvottahús/geymsla:  Rúmgott þvottaherbergi sem er 13 fm og er séreign þessarar íbúðar. Innangengt er úr íbúðinni niður í kjallara. Stór gluggi. Laus geymsluinnrétting með skúffum og borðplötu. 
Sérgeymsla: Stór og fín 7,5 fm sérgeymsla með litlum glugga. Innst í geymslunni er tekið úr fyrir sorptunnuskýli sem er aðgengilegt utanfrá húsinu. 
Sameign: Stigi er frá íbúðum að kjallara þar sem sameignargangur í eigu tveggja íbúða. Einnig er inngangur á gafli hússins í kjallara. 
Lóðin: Gróinn garður til suðurs og meðfram húsi. Lóðinni hefur verið skipt með trjágróðri miðja vegu milli matshlutanna, og sér hvor matshluti algerlega um kostnað og umhirðu síns hluta lóðarinnar. Lóðin er sameiginleg með húsi nr 7 sem er matshluti 1. 8 bílastæði eru á lóðinni, jafnmargar og íbúðirnar eru.

     **SÆKTU SJÁLFVIRKT SÖLUYFIRLIT MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR**

     ** SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍÐRI SÝN MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR**

Framkvæmdasaga á eignatíma núverandi eigenda: 
2022: Baðherbergi endurnýjað, lagður gólfhiti þar, flísalagt og málað, nýjar innréttingar og tæki. Veggir sem ekki voru flísalagðir málaðir.
2022: Rafmagn innan íbúðar var endurnýjað sem og greinataflan í íbúð. Rofar og innstungur endurnýjað. 
2018: Eldhús endurnýjað. Flísar á gólfi og veggjum. Ný innrétting, hillur og tæki. Málað.

Samandregið er þetta einstaklega hlýleg og kósý íbúð þar sem fermetrar nýtast mjög vel. Íbúðin er talsvert endurnýjuð af núverandi eigendum á síðustu árum, s.s. baðherbergi, eldhús auk þess sem allt rafmagn innan íbúðar er endurnýjað. Þakið var endurnýjað 2015 fyrir eignatíma seljenda.

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 / gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 /  gylfi@remax.is
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Stefnisvogur 3 - íbúð 309
104 Reykjavík
91.6 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
896 þ.kr./m2
82.100.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Súðarvogur 9a
104 Reykjavík
81 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
962 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Kuggavogur 26
104 Reykjavík
87.3 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
915 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Langholtsvegur 122-124
104 Reykjavík
88.9 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
212
844 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin