Dalsel 38 - falleg 3ja herbergja íbúð með lokuðum svölum í suður og stæði í bílageymsluhúsi. RE/MAX og Þorsteinn Ólafs löggiltur fasteignasali kynna fallega 3ja herbergja íbúð í fjölskylduvænu hverfi við Dalsel 38 ásamt stæði í bílageymslu. Um er að ræða 90,2 fm íbúð á 2. hæð hússins ásamt 5,2 fm sérgeymslu á 1. hæð og 10,4 fm lokuðum svölum sem nýtast sem 3. svefnherbergið ásamt 31,3 fm stæði í bílageymsluhúsi.
Nánari lýsing: Forstofa / hol er rúmgott með parketi á gólfi og getur nýst sem sjónvarpshol. Stofan er rúmgóð og björt með stórum gluggum sem gefa fallega birtu inní rýmið. Frá stofu er útgengi út á yfirbyggðar svalir í suður. Baðherbergið er nýlega flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, salerni, hvítri innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Herbergi I: Parket á gólfi og stór fataskápur. Herbergi II: Parket á gólfi. Eldhúsið er með snyrtilegri eldri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, borðkrók og korkflísum á gólfi. Svalir: Yfirbyggðar svalir í suður. Sérgeymsla er 5,2 fm í kjallara. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign. Sérbílastæði er í lokuðum bílakjallara með myndavélakerfi. Sameigin timburlögð útiverönd fyrir framan húsið.
Viðhaldssaga hússins: 2016 og 2025 skipt um glugga og gler 2014 frárennslislagnir fóðraðar 2009 skipt um járn á þaki 2002 húsið klætt með áli.
Seljahverfið er sérlega fjölskylduvænt hverfi og í hverfinu og næsta nágrenni er flest þjónusta s.s. skólar, leikskólar og verslanir. Íþróttasvæði ÍR og Leiknis eru bæði í nágrenninu. Auk þess er stutt í útivistarsvæði s.s. í Elliðaárdalinn.