** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA ** Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:Fallega og vel skipulagða 5 herbergja íbúð með sérinngangi og bílskúr við Straumsal 1, 201 Kópavogi. Eignin er staðsett í snyrtilegu 6 íbúða fjölbýli þar sem allar íbúðir eru með sérinngang. Sameiginlegur garðurinn snýr til suðvesturs og er einstaklega barnvænn. Sérinngangur íbúðar er af svölum sem liggja eingöngu undir íbúðinni og nýtast því sem auka svalir.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 158,3 fm sem skiptist í íbúðarrými 130,4 fm, geymslu í sameign 6,6 fm og bílskúr 21,3 fm.SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT sent til þín samstundisHúsið hefur fengið gott viðhald síðustu ár:-
2025 Þakið var lagað í desember - Viðgerð á pappa þaksins, skipt var um allan hringinn.
-
2025 Múrviðgerðir á tröppum og palli voru framkvæmdar um sumarið
-
2022 Tréverk var málað og húsið sílanborið um sumarið
Endunýjun innan íbúðar:-
2024 Eldhúsinnrétting IKEA ásamt tækjum frá Heimilistækjum
-
2022 Svalalokun
-
2021-22 Baðherbergi endurnýjað af fyrri eigendum
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnumSMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagnaAllar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is Innan íbúðar eru fjögur rúmgóð svefnherbergi, bjart opið stofu- og borðstofurými, endurnýjað eldhús, glæsilegt baðherbergi, gott þvottahús og björt og rúmgóð forstofa.Nánari lýsing eignar:Forstofa: Með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergin eru fjögur og eru þau öll mjög rúmgóð með góðum fataskápum.Baðherbergið var endurnýjað af fyrri eigendum ca 2021-2022 og er einstaklega smekklegt með walk-in sturtu, upphengdu salerni, góðri innrétting bæði undir handlaug og frístandandi, handklæðaofni og glugga til loftunar. Flísar eru á gólfi og veggjum.
Eldhúsið var endurnýjað árið 2024 og er innrétting frá IKEA. Bætt var við vönduðum tækjum frá Heimilistækjum, þar á meðal auka bakaraofni (og eru því tveir), innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél. Gluggi er til austurs, flísar upp á vegg og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu og björtu samliggjandi rými með stórum gluggum til suðurs og suðvesturs sem gefa fallega birtu inn í rýmið. Parket er á gólfi og útgengt er á svalir til suðvesturs með svalalokun sem sett var upp árið 2022.
Bílskúrinn er með epoxý á gólfi með rafdrifinni hurð ásamt heitu og köldu vatni.
Um er að ræða fjölskylduvæna og vel staðsetta eign í vinsælu hverfi í Kópavogi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og alla helstu þjónustu. Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru í næsta nágrenni og hentar eignin einstaklega vel fyrir fjölskyldur sem vilja rúmgóða eign með sérinngangi og góðri útiaðstöðu. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat. Heimasíða RE/MAXGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk