RE/MAX Ísland logo
Opið hús:25. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 21. ágúst 2026
Söluyfirlit

Nýlendugata 22

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
77.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
76.800.000 kr.
Fermetraverð
994.819 kr./m2
Fasteignamat
73.400.000 kr.
Brunabótamat
40.800.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1926
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2000370
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta 2016
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Komið að viðhaldi
Þak
Endurnýjað að hluta 2016
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Gluggar komnir að viðhaldi. 
** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **

RE/MAX, HERA BJÖRK Lgfs. ( 774-1477 / herabjork@remax.is ) & SALVÖR ÞÓRA Lgfs. ( 844-1421salvor@remax.is ) kynna:
Einstaklega fallega, bjarta og sjarmerandi 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í reisulegu og karakterríku steinhúsi frá árinu 1926 við Nýlendugötu 22 í Gamla Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin einkennist af mikilli lofthæð, háum og fallegum gluggum, björtum rýmum og klassískum sjarma eldri Reykjavíkurhúsa. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð að innan og samþykki liggur fyrir fyrir byggingu svala út frá eldhúsi.

Helstu kostir
  • Mikið endurnýjuð íbúð
  • Mikil lofthæð og háir, bjartir gluggar
  • Samþykki fyrir svölum út frá eldhúsi
  • Geymsla og þvottaaðstaða innan íbúðar
  • Reisulegt og karakterríkt steinhús frá 1926
  • Frábær staðsetning í Gamla Vesturbænum
** SMELLIÐ HÈR fyrir nánari upplýsingar og/eða til að bóka í OPIÐ HÚS  **
** SMELLIÐ HÉR til að sækja SÖLUYFIRLIT og EIGNAMÖPPU samstundis **


Nánar um eign
Eignin er skráð 77,2m² samkvæmt Þjóðskrá Íslands og skiptist í hol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, vinnuaðstöðu og geymslu innan íbúðar. Íbúðin er innréttuð í hlýlegum og sjarmerandi stíl með ljósum innréttingum. Flísar eru á holi, eldhúsi og baðherbergi en ljóst parket á stofu og svefnherbergjum. Mikil lofthæð og háir gluggar gefa eigninni sérstakan karakter og skapa góða birtu og skemmtilega rýmisupplifun.

** SMELLTU HÉR til að skoða eignina í 3D **

Nánari lýsing
Hol: Komið er inn í flísalagt hol með fallegum svörtum og hvítum flísum. Þaðan er gengið inn í helstu rými íbúðarinnar.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með ljósu parketi. Mikil lofthæð og háir gluggar gefa rýminu fallegan karakter og góða birtu.
Eldhús: Sjarmerandi og bjart eldhús með ljósri innréttingu og góðu vinnu- og skápaplássi. Flísar eru á gólfi. Samþykki liggur fyrir fyrir byggingu svala út frá eldhúsi.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart svefnherbergi með ljósu parketi. Gluggi snýr út að Nýlendugötu.
Svefnherbergi II: Gott herbergi með parketi. Gluggi snýr að bakgarði, Mýrargötumegin.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með svartri innréttingu og flísum á veggjum og gólfi. Opin sturta með glerskilrúmi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi snýr að bakgarði.
Vinnuaðstaða / geymsla: Inn af litlu holi, sem nýtist vel sem vinnuaðstaða, er góð geymsla innan íbúðar.
Garður: Bakgarður hússins er rótgróinn og skjólsæll og myndar notalegt útisvæði í miðri borginni.

Endurbætur og viðhald
Eignin og húsið hafa verið töluvert endurnýjuð og fengið gott viðhald í gegnum tíðina.
Um aldamótin voru meðal annars neysluvatnslagnir, ofnar, skolplagnir og dren yfirfarin og endurnýjuð að hluta.
Árið 2013 var farið í viðgerðir á ytra byrði hússins. Þá var unnið að þaki og það endurbætt, þakrennur og niðurföll endurnýjuð og húsið málað að utan.
Árið 2016 var íbúðin mikið endurnýjuð að innan. Þá var meðal annars farið í lagnir og rafmagn, ofna og ofnalagnir, innréttingar og tæki í eldhúsi og á baðherbergi. Ný gólfefni voru lögð, bæði flísar og parket, baðveggir endurbyggðir, gólf flotuð og íbúðin máluð.

Staðsetning
Nýlendugata 22 er einstaklega vel staðsett í hjarta Gamla Vesturbæjarins þar sem róleg og söguleg bæjarstemning mætir líflegu miðborgarlífi.
Örfáar mínútur eru niður á Granda, að gömlu höfninni og Slippnum, þar sem finna má fjölbreytt úrval veitingastaða, kaffihúsa, sérverslana, hönnunarverslana, líkamsræktar og afþreyingar. Svæðið hefur byggst hratt upp á undanförnum árum og er orðið eitt líflegasta og eftirsóttasta þjónustu- og mannlífssvæði borgarinnar.
Fallegar göngu- og hjólaleiðir liggja meðfram sjónum og höfninni og þaðan nýtur maður útsýnis yfir Esjuna og sundin.
Miðborg Reykjavíkur er jafnframt í þægilegu göngufæri og stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, almenningssamgöngur og alla helstu þjónustu.
Einstaklega sjarmerandi eign þar sem fallegur karakter eldri Reykjavíkurhúsa, björt og vel skipulögð rými og frábær staðsetning í Gamla Vesturbænum fara sérlega vel saman.

** Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.**

Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Hera Björk, löggiltur fasteignasali í 774-1477 / herabjork@remax.is
Salvör Þóra löggiltur fasteignasali í 844-1421salvor@remax.is 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.600 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?
Við höfum starfað við fasteignasölu frá árunum 2013 og 2016 og höfum á þeim tíma byggt upp góða reynslu og þekkingu á markaðnum.
Fyrir okkur skiptir máli að ná góðu verði og leiða viðskiptavini örugglega og faglega í gegnum stærstu fjárhagslegu ákvarðanir lífsins.
Við leggjum ríka áherslu á vönduð vinnubrögð, skýr samskipti og markmið okkar er einfalt: að hámarka verðmæti eignar og tryggja faglegt, skilvirkt og árangursríkt söluferli. Við leggjum okkur fram um að veita persónulega þjónustu með hagsmuni viðskiptavina í forgangi, öryggi og traust frá fyrsta samtali til afhendingar.
Hafðu samband í dag fyrir frítt og skuldbundingarlaust verðmat ásamt greinargóðri ráðgjöf um næstu skref.
- Salvör Þóra, lgf í síma 844-1421 eða salvor@remax.is
- Hera Björk, lgf í síma 774-1477 eða herabjork@remax.is

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Grettisgata 79
101 Reykjavík
83.7 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
523
955 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Sólvallagata 81
101 Reykjavík
79.7 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
211
940 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Suðurgata 9
101 Reykjavík
86.5 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
877 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Laugavegur 76
101 Reykjavík
92.3 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
412
833 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin