Sveinn Gíslason og RE/MAX kynna tveggja herbergja 50,4 fm íbúð í tvíbýlishúsi að Skipasundi 43, 104 Reykjavík. Stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði Þróttar og íþróttaaðstöðu Ármanns og allt það sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða.
Allar upplýsingar veitir Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali sveinn@remax.is sími 859-5559.Nánari lýsing:Forstofa með flísum á gólfi. Inn af forstofu er gengið inn gang og þaðan inn í svefnhvergi og inn í stofu.
Stofan er með parketi á gólfi og gluggum á tvær hliðar.
Eldhúsið er með grárri innréttingu (máluð) og góðum borðkrók. Gert ráð fyrir frístandandi ísskáp og tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergið er með parketi á gólfi og frístandandi fataskáp sem fylgir.
Baðherbergið er með dökkum flísum á gólfi hvítum flísum á veggjum, upphengdu salerni og hvítri innréttingu og sturtu.
Geymsla er undir stiga við inngang íbúðar.
Sameiginlegt þvottarhús er utan íbúðar sem er að mestu notað af íbúum íbúðarinnar.
Húsið lítur mjög vel út að utan og hefur nýlega vera málað. Dren og frárennsli var endurnýjað að hluta 2013-2014 ásamt því sem búið er að endurnýja rafmagns og vatnslagnir að hluta. Ný heimtaug lögð 2023.
Bakgarðinum hefur verið skipta upp á milli eigenda þó hann sé í sameign skv. þinglýstum heimildum.
Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.