Sveinn Gíslason og RE/MAX kynna virkilega veglegt 286,1 fm einbýlishús að Lyngholt 13, 225 Álftanesi. Um er að ræða steypt einbýlishús með innbyggðum bílskúr þar sem aukin lofthæð er í öllum rýmum og gólfhiti í öllum gólfum. Útgengt er út á lóð bæði frá eldhúsi, stofu og baðherbergi. Pallur er til vesturs með heitum potti og geymsluskúr. Húsið er steinað að utan og því viðhaldsþörfin minni. Bílskúrinn er afar stór og rúmgóður með flísum á gólfi. Þetta er svo sannarlega eign fyrir vandláta sem vilja búa í sveit í borg. Mjög stutt er í leikskóla, grunnskóla, á íþróttasvæði og í sundlaug Álftaness.
Allar upplýsingar veitir Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali sveinn@remax.is sími 859-5559.
Eignin skiptist í 233,8 fm íbúðarrými og 52,3 fm bílskúr.
Nánari lýsing: Gengið er inn í flísalagða forstofu með miklu skápaplássi. Frá forstofu er gengið inn í þvottahús með miklu skápaplássi og þaðan inn í bílskúr. Einnig er gengið inn á gestasalerni frá forstofu. En bæði rýmin eru flísalögð með dökkum flísum. Frá forstofu er gengið inn um rennihurð inn á gang sem tengir eldhús og stofu annars vegar og sjónvarpsherbergi og önnur herbergi eignarinnar hins vegar. Gegnheilt parket er á öllum rýmum nema í eldhúsi og á baðherbergjum en þar eru sömu flísar og eru á forstofu. Eldhúsið, borðstofan og stofan eru í afar rúmgóðu alrými með 3,15 m lofthæð þar sem útgengt er út í garð bæði úr eldhúsi og út á pall út frá stofu. Eldhúsinnréttingin er hvít með viðarbekkjum. Stór eldhúseyja með Mile span helluborði. Gert er ráð fyrir amerískum ísskápi í innréttingu og tveir Mile ofnar í vinnuhæð ásamt nýlegri Mile uppþvottavél. Stórir veglegir gluggar í þrjár áttir eru í alrýminu og arinn í stofu. Frá forstofugangi er síðan gengið inn í afar rúmgóða sjónvarpsstofu með innbyggðum hillum og sérsmíðuðum sjónvarpsskenk. Öll svefnherbergin eru afar rúmgóð. Hjónasvítan er með sérbaðherbergi með "walk in" sturtu og upphengdu salerni. Fataherbergi er inn af hjónaherberginu. Frá baðherbergi á svefnherbergjagangi er gengið út á pall þar sem er hitaveitupottur. Baðherbergið er afar rúmgott með hvítri innréttingu og stórum spegli. Upphengt salerni og "walk in" sturta með innbyggðum Vola blöndunartækjum. Bílskúrinn er afar rúmgóður með mikilli lofthæð og stórri bílskúrshurð, bílhleðslustöð í bílskúr fylgir. Geymsla er inn af bílskúr.
Árið 2010 var þak hússins tekið í gegn og tvöfaldur pappi bræddur á það og steinar settir yfir aftur. Danfoss varmaskiptir á neysluvatni og Danfoss hitastýring á heitum potti. Búið er að skipta öllum halogen perum út fyrir LED í innbyggðri lýsingu. Húsið hefur fengið afar gott viðhald allt frá byrjun, t.d. var steining sílíkon húðuð árið 2020. Húsið stendur á lóð þar sem óbyggt er fyrir aftan það að hluta.
Kostnaður kaupanda: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
gott/upprunalegt - skipt um stærstu glerin í alrými
Þak
gott yfirfarið og settur tvöfaldur pappi árið X
Svalir
verönd
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging