RE/MAX Ísland logo
Opið hús:22. nóv. kl 14:00-14:30
Skráð 18. nóv. 2026
Söluyfirlit

Tungusel 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
113.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.900.000 kr.
Fermetraverð
644.562 kr./m2
Fasteignamat
69.300.000 kr.
Brunabótamat
58.950.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Garðar Hólm
Garðar Hólm
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1977
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2054701
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX ásamt Guðlaugu Jónu lgf. og Garðari Hólm lgf. kynna: Glæsilega 4ra herbergja íbúð á 3.hæð við Tungusel 5, Reykjavík. Nýlega hefur eldhús verið endurnýjað á afar smekklegan máta. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 113,1 fm, þar af geymsla 12,9 fm. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu

Hér er um mjög góða eign í neðri hluta Seljahverfisins. Örstutt leið er út á allar stofnbrautir og í alla þjónustu. Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru í hverfinu og inn í Kópavog bæði Salahverfi og Salarlaug og Kópavogsdal um undirgöng. 
Tungusel er á afar barnvænum og rólegum stað og er íbúðin innarlega í botlanga Tungusels, rétt við Ölduselsskóla og leikskólann.  Stutt ganga er í alla þjónustu og almenningssamöngur. Til stendur að endurskipuleggja ÍR íþróttasvæðið sem er í hverfinu og verður þjónustan þar og aðstaða mikil lyftistöng fyrir íþróttafólkið í hverfinu og Reykjavík.

      NÁNARI LÝSING:
Forstofa:
 Nýleg eldvarnarhurð.
Eldhús:  Eldhúsið er með fallegri og nýlegri dökkri innréttingu, ofni  í vinnuhæð og spanhelluborði með innfeldum háf. Fallegt útsýni er úr nýjum eldhúsglugganum. Fljótandi ljóst plastparket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa sem rúmar bæði stofu og borðstofu. Stórir nýir gluggar, útgengi út á rúmgóðar suðursvalir. Gardínustangir. 
Baðherbergi: Upphengt salerni, baðkar, vegghengd handlaug, Frístandandi hár hvítur skápur. Snagar bakvið hurð. Flísar á gólfi og veggjum. 
Herbergi 1: Mjög stórt og rúmgott herbergi með innbyggðum vel með förnum skápum hólf í gólf með rennihurðum eftir einum vegg. Parketdúkur á gólfi. Eldri rúllugardínur og gardínustöng.
Herbergi 2: Gott herbergi, vegghillur. Parketdúkur á gólfi.Nýr gluggi, mikilfenglegt útsýni. 
Herbergi 3: Einnig mjög rúmgott herbergi. Í dag er það notað sem sjónvarpsherbergi, en auðvelt er að breyta aftur til baka í lokað herbergi með því að setja aftur fataskáp eða léttan vegg. Nýr gluggi, útsýni. Fljótandi ljóst plastparket. Gardínustöng.
Sérgeymsla: Á geymslugangi er stór og rúmgóð 13,2 fm sérgeymsla með vegghillum. 
Sameign og lóð: Í kjallara er rúmgott þvottahús og þurrkherbergi.Sameiginlegar stórar vélar. Hjóla- og vagnageymsla er í kjallara sem og Leikherbergi/sameiginleg geymsla.. Hægt er að ganga inn í stigaganginn beggja megin hússins. 

FRAMKVÆMDIR UNDANFARIN ÁR: 
2026 
Skipt um ofn í hjónaherberginu.
Skiptum út fataskáp í barna herbergi.
Í sumar skipt um eldhús, innbyggður ísskápur, ofn í vinnuhæð, helluborð með innbyggðri viftu, frystir undir borðplötu og innbyggð uppþvottavél.
Sett var nýtt rafmagn og sér tafla fyrir eldavél og helluborð í eldhúsi.
2019-2020: Ytra byrði húss yfirfarið, múrviðgert og málað. Flestir gluggar hússins endurnýjaðir og aðrir yfirfarnir. Svalir yfirfarnar, flotaðar og lakkaðar. Skipt um þakjárn og rennur, snjóbræðsla í útitröppum framan við inngang endurnýjuð, þær flotaðar o fl.   
ca 2020:  Allir ofnar íbúðar endurnýjaðir utan hjónaherbergis. 
ca 2020:  Íbúðarhurðar endurnýjaðar, eldvarnarhurðar settar á íbúðir í stigagangi.
ca 2020:  Baðherbergi endurnýjað, (gólfefni, flísar, salerni, handlaug, innrétting)
ca 2020:  Plastparket lagt á gólf og sólbekkur í stofu endurnýjaður.

Allar nánri upplýsingar veita:
Garðar Hólm lgf. í síma 899-8811 gardar@remax.is
Guðlaug Jóna lgf. í síma 661-2363 eða gulla@remax.is

 

 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Dalsel 12
109 Reykjavík
117 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
413
615 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Seljabraut 38
109 Reykjavík
133,6 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
523 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Flúðasel 76
109 Reykjavík
147,4 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
413
495 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Fífusel 18
109 Reykjavík
103,9 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
413
671 þ.kr./m2
69.700.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin