RE/MAX ásamt Guðlaugu Jónu lgf. og Garðari Hólm lgf. kynna: Glæsilega 4ra herbergja íbúð á 3.hæð við Tungusel 5, Reykjavík. Nýlega hefur eldhús verið endurnýjað á afar smekklegan máta. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 113,1 fm, þar af geymsla 12,9 fm. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu
Hér er um mjög góða eign í neðri hluta Seljahverfisins. Örstutt leið er út á allar stofnbrautir og í alla þjónustu. Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru í hverfinu og inn í Kópavog bæði Salahverfi og Salarlaug og Kópavogsdal um undirgöng.
Tungusel er á afar barnvænum og rólegum stað og er íbúðin innarlega í botlanga Tungusels, rétt við Ölduselsskóla og leikskólann. Stutt ganga er í alla þjónustu og almenningssamöngur. Til stendur að endurskipuleggja ÍR íþróttasvæðið sem er í hverfinu og verður þjónustan þar og aðstaða mikil lyftistöng fyrir íþróttafólkið í hverfinu og Reykjavík.
NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Nýleg eldvarnarhurð.
Eldhús: Eldhúsið er með fallegri og nýlegri dökkri innréttingu, ofni í vinnuhæð og spanhelluborði með innfeldum háf. Fallegt útsýni er úr nýjum eldhúsglugganum. Fljótandi ljóst plastparket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa sem rúmar bæði stofu og borðstofu. Stórir nýir gluggar, útgengi út á rúmgóðar suðursvalir. Gardínustangir.
Baðherbergi: Upphengt salerni, baðkar, vegghengd handlaug, Frístandandi hár hvítur skápur. Snagar bakvið hurð. Flísar á gólfi og veggjum.
Herbergi 1: Mjög stórt og rúmgott herbergi með innbyggðum vel með förnum skápum hólf í gólf með rennihurðum eftir einum vegg. Parketdúkur á gólfi. Eldri rúllugardínur og gardínustöng.
Herbergi 2: Gott herbergi, vegghillur. Parketdúkur á gólfi.Nýr gluggi, mikilfenglegt útsýni.
Herbergi 3: Einnig mjög rúmgott herbergi. Í dag er það notað sem sjónvarpsherbergi, en auðvelt er að breyta aftur til baka í lokað herbergi með því að setja aftur fataskáp eða léttan vegg. Nýr gluggi, útsýni. Fljótandi ljóst plastparket. Gardínustöng.
Sérgeymsla: Á geymslugangi er stór og rúmgóð 13,2 fm sérgeymsla með vegghillum.
Sameign og lóð: Í kjallara er rúmgott þvottahús og þurrkherbergi.Sameiginlegar stórar vélar. Hjóla- og vagnageymsla er í kjallara sem og Leikherbergi/sameiginleg geymsla.. Hægt er að ganga inn í stigaganginn beggja megin hússins.
FRAMKVÆMDIR UNDANFARIN ÁR:
2026
Skipt um ofn í hjónaherberginu.
Skiptum út fataskáp í barna herbergi.
Í sumar skipt um eldhús, innbyggður ísskápur, ofn í vinnuhæð, helluborð með innbyggðri viftu, frystir undir borðplötu og innbyggð uppþvottavél.
Sett var nýtt rafmagn og sér tafla fyrir eldavél og helluborð í eldhúsi.
2019-2020: Ytra byrði húss yfirfarið, múrviðgert og málað. Flestir gluggar hússins endurnýjaðir og aðrir yfirfarnir. Svalir yfirfarnar, flotaðar og lakkaðar. Skipt um þakjárn og rennur, snjóbræðsla í útitröppum framan við inngang endurnýjuð, þær flotaðar o fl.
ca 2020: Allir ofnar íbúðar endurnýjaðir utan hjónaherbergis.
ca 2020: Íbúðarhurðar endurnýjaðar, eldvarnarhurðar settar á íbúðir í stigagangi.
ca 2020: Baðherbergi endurnýjað, (gólfefni, flísar, salerni, handlaug, innrétting)
ca 2020: Plastparket lagt á gólf og sólbekkur í stofu endurnýjaður.
Allar nánri upplýsingar veita:
Garðar Hólm lgf. í síma 899-8811 gardar@remax.is
Guðlaug Jóna lgf. í síma 661-2363 eða gulla@remax.is