RE/MAX Ísland logo
Opið hús:14. júlí kl 17:00-17:30
Skráð 3. nóv. 2025
Söluyfirlit

Grettisgata 79

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
83.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
990.442 kr./m2
Fasteignamat
66.150.000 kr.
Brunabótamat
54.450.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1929
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2005564
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað, talið í lagi
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Dyrabjalla virkar ekki.
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og mikið endurnýjuð þriggja herbergja 83,7 fm. íbúð á 2. hæð í þríbýlishúsi við Grettisgötu 79, Reykjavík.  Með íbúðinni fylgir herbergi í kjallara með eldhúsaðstöðu og sér baðherbergi sem nýst getur sem útleigueining. Bílastæði er fyrir aftan hús. 

Umfangsmiklum framkvæmdum á ytra byrði er nýlega lokið.  Húsið var múrviðgert og málað, skipt um glugga og gler, þak endurnýjað, kvistum og svölum bætt við rishæð sem hefur fegrað mikið ásýnd hússins.  Einnig hefur eldhús og baðherbergi íbúðar verið endurnýjað, ný rafmagnstafla og skólp endurnýjað.

Björt og vel skipulögð íbúð á vinsælum stað ásamt útleiguherbergi með mikla möguleika. Fjölbreytt þjónusta í göngufæri, þá verslun, kaffi- og veitingahús, Sundhöll Reykjavíkur, leik- og grunnskólar ásamt öllu því sem miðborgin hefur uppá að bjóða.


FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU STUDIOHERBERGI KJALLARA Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR


Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is 

Nánari lýsing íbúð á 2. hæð, skráð 69,3 fm. að stærð. Komið inní forstofuhol sem tengir saman öll rými íbúðar. 
Eldhús hefur verið endurnýjað, falleg hvít eldhúsinnrétting með viðarborðplötu. Helluborð og bökunarofn.
Tvö svefnherbergi, bæði mjög rúmgóð og björt.
Stofan er rúmgóð og björt. Stórir gluggar og aukin lofthæð gefa íbúðinni einstaklega mikinn sjarma.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað. Flísalagt í hólf og gólf. Sturta, upphengt salerni, vaskur og spegill.
Harðparket er á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergi. 

Nánari lýsing á herbergi í kjallara, ath. skráð á fasteignayfirliti sem geymsla íbúðar:
Svefnherbergið er rúmgott um 14,4 fm. að stærð.  Eldhúsinnrétting með ísskáp, vask og pláss fyrir barstóla. 
Sérbaðherbergi er með sturtu og salerni fyrir herbergið í sameigninni. Flot á gólfi. Flísalagt í hólf og gólf. Sturta, vaskur, upphengdur speglaskápur og salerni.  (Ath baðherbergi eru auka óskráðir um 4 fm.)
Herbergið er nýlega yfirfarið, parketlagt og málað. 

Sameiginlegt þvottahús er í kjallara, sértengill fyrir íbúð.  Eigninni fylgir ss. skv. eignaskiptayfirlýsingu sérafnotaréttur að geymslu/baðherbergi í kjallara (merkt 00-04). Hlutfallstala í stigagangi er 40,6 % og hlutfallstala í hitakostnaði 38,72 %. Bílastæði eru fyrir aftan hús.

Framkvæmdir og viðhald:
2026 voru umfangsmiklar framkvæmdir á ytra byrði kláraðar. Húsið múrviðgert og málað.  Skipt um glugga og gler. Sett nýtt aluzink bárujárn ásamt þakpappa og útloftunartúðum, nýjar þakrennur og niðurföll.  Settir snjóstoppar á þak og laufgildrur í niðurföll. Kvistum og svölum var bætt við rishæðina sem bætir ásýnd hússins og því húsið í heild fært til fyrra horfs (miðað við upprunalegar teikningar).  Gert var við útidyr bæði að framan og aftan, sett ný hurðapumpa og þær lakkaðar.  Herbergi niðri jafnframt yfirfarið, málað og parketlagt.  
Innan íbúðar hefur eldhús og baðherbergi verið endurnýjað og dregið í nýtt rafmagn að mestu og ný rafmagnstafla.  Búið er að endurnýja skólp út í götu. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Kuggavogur 26
104 Reykjavík
88.6 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
947 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Barónsstígur 6
101 Reykjavík
82.6 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
967 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Kristnibraut 79
113 Reykjavík
108.1 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
739 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Kambavað 1-3
110 Reykjavík
88.3 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
894 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin