RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna, Reynidal 3, íbúð 0101 - fnr. 229-8783Íbúðin er skráð samkvæmt Þjóðskrá 97,9 fm. Húsið er byggt árið 2020 og er fjölbýlishús með fjórum íbúðum. íbúðin er á neðri hæð hússins og er með sér inngangi.
3D - SKOÐAÐU EIGNINA Í ÞRÍVÍÐU UMHVERFI HÉR - 3DFÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Aðkoma: Malbikuð stæði eru fyrir framan húsið og er eitt sérmerkt stæði og einnig eru gestastæði.
Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.
Stofa, borðstofa og eldhús: Eru í opnu rými. Þar er parket á gólfi. Stílhrein eldhús innrétting með góðu skápa og vinnuplássi þar sem gert er ráð fyrir uppþvottavél. Útgengt á verönd sem snýr til suðurs.
Svefnherbergi: Eru tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim báðum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta. Þar er falleg innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Inn af baðherbergi er þvottahús með flísum á gólfi og ljósri innréttingu.
Geymsla: Er innan íbúðar, parket á gólfi. Þar er gluggi og því mögulegt að nýta rýmið sem svefnherbergi.
Merkt bílastæði fylgir eigninni. Á baklóð er góð verönd sem snýr til suðvesturs. Frábær staðsetning þar sem stutt er í glæsilegan nýjan grunn- og leikskóla, Stapaskóla.Lóð: Sameiginleg lóð sem er tyrfð.
Merkt bílastæði fylgir eigninni. Á baklóð er góð verönd sem snýr til suðvesturs. Frábær staðsetning þar sem stutt er í glæsilegan nýjan grunn- og leikskóla, Stapaskóla. Íbúðin er einstaklega falleg og aðlaðandi. Stutt er í alla þjónustu, Stapaskóla, glæsilegur leik- og grunnskóli. Góðar gönguleiðir eru í hverfinu. Stutt er á Fitjar þar sem er mikill þjónustukjarni með veitingastöðum og matvörubúðum. Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf hjá Remax í s:
861-7507 eða á
daddi@remax.is- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.