** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **Þórdís Björk Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:Fallega, bjarta og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð með bílskúr og skjólgóðri viðarverönd til suðurs í Grafarholti. Íbúðin er á fyrstu hæð hússins, jarðhæð sunnanmegin frá, í góðu fjölbýlishúsi með lyftu og fallegu útsýni til vesturs. Bílskúrinn er á jarðhæð norðan megin og er lyfta í húsinu.
Allar innréttingar innan íbúðar endurnýjaðar, eldhús, baðherbergi, þvottahús, fataskápar ásamt gólfefnum. Rafhleðslustöð er á bílastæðalóð.Samkvæmt skráningu eignar hjá HMS er eignin samtals 128,6 fm sem skiptist í íbúðarrými 98,3 fm, geymslu 8,1 fm og bílskúr 22,2 fm. SMELLTU HÉR til að sækja ÖLL gögn um eigninaEndurbætur eignar síðustu ár: - 2020 - Húsið var sílanborið og málað
- 2021 - Eldhús endurnýjað - Innrétting frá IKEA
- 2021 - Innihurðar frá Birgisson
- 2021 - Gólfefni frá Birgisson
- 2022 - Veröndin yfirfarin
- 2024 - Þvottahús - Innrétting frá IKEA
- 2025 - Baðherbergi - Innrétting IKEA, tæki frá BYKO, flísar frá Álfaborg
- 2026 - Veröndin máluð og bætt við skjólveggjum
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagnaInnan íbúðar eru tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofa og eldhús, stofa og borðstofa í opnu og björtu rými.
Nánari lýsing eignar:Forstofa: Rúmgóð með góðum fataskápum og flísum á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa: Eru í opnu, björtu og samliggjandi rými með stórum gluggum til norðurs og vesturs og parketi á gólfi. Opið skipulag skapar góða tengingu milli eldhúss, stofu og borðstofu. Útgengt er á skjólgóða viðarverönd á sérafnotareit íbúðar til suðurs.
Eldhús: Er með hvítri IKEA-innréttingu sem býður upp á gott skápapláss og vinnuaðstöðu.
Svefnherbergin eru tvö.Herbergi I: Hjónaherbergið er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Herbergi II: Er í góðri stærð með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt. Þar er flísalögð walk-in sturta, upphengt salerni, góð innrétting við handlaug, handklæðaofn og flísar á gólfi.
Þvottahús: Sérþvottahús innan íbúðar með góðri innréttingu með góðu skápaplássi, vaski og tengjum fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Verönd og sérafnotareitur: Úr alrými íbúðar er útgengt á skjólgóða viðarverönd til suðurs sem er innan sérafnotareits íbúðar. Veröndin veitir góða möguleika til útiveru og eykur notagildi eignarinnar.
Bílskúr: Er 22,2 fm og staðsettur norðan megin við húsið. Bílskúrinn er upphitaður og búinn veggföstum hillum, vaski og rafdrifinni bílskúrshurð.
Sérgeymsla: Er 8,1 fm og staðsett í sameign hússins.
Sameign: Í húsinu er lyfta ásamt góðri sameiginlegri hjólageymslu. Sameignin er öll hin snyrtilegasta.
Rafhleðslustöð er á bílastæðalóðNánar um staðsetningu:Kristnibraut 43 er staðsett í Grafarholti, fjölskylduvænu og vinsælu hverfi í Reykjavík. Í hverfinu eru leik- og grunnskólar, íþróttaaðstaða og fjölbreytt útivistarsvæði. Góðir göngu- og hjólastígar liggja um hverfið og stutt er í fallega náttúru. Grafarholtið er vel staðsett með góðum samgöngutengingum við aðra hluta höfuðborgarsvæðisins.
Um er að ræða einstaklega fallega, vel skipulagða, bjarta og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð með sérbílskúr og skjólgóðri suðurverönd í fjölskylduvænu hverfi.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali í síma 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar) af heildarfasteignamati.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. samkvæmt gildandi gjaldskrá.
- Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
- Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.