** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA ** Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:Einstaklega bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð í góðu fjölbýli staðsett innst í botnlanga, sem veitir gott næði og rólegt umhverfi. Íbúðin nýtur fallegs útsýnis að Laugardalnum og er á eftirsóttum stað í grónu og fjölskylduvænu hverfi.
Samkvæmt skráningu HMS er eignin 95,3 fm, þar af er íbúðarrýmið 89,0 fm og geymsla íbúðar 6,3 fm í kjallara.Húsið hefur verið tekið í gegn að utan, múrað og málað, járn og pappi á þaki endurnýjuð og rafmagnstafla í sameign endurnýjuð. Bæði sameign og aðkoma að húsinu eru sérlega snyrtileg.
Með hverri íbúð fylgja tveir skápar á stigapalli.
SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT sent til þín samstundis SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagnaAllar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is
Innan íbúðar er: anddyri/miðrými, 3 herbergi, stofa og borðsstofa sameiginleg, baðherbergi og eldhús.
Nánari lýsing eignar:Anddyri / miðrými: Flísalagt gólf og ágætir fataskápar. Anddyrið tengir öll rými íbúðar á skilvirkan hátt.
Eldhúsið: Nokkuð rúmgott eldhús með ljósri viðarinnréttingu, góðu skápaplássi, flísum á milli skápa, glugga til norðurs, parketi á gólfi og tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergin eru þrjú:Herbergi I er hjónaherbergi, rúmgott með góðum fataskápum, parketi á gólfi og útgengi á skjólsælar suðursvalir.
Herbergi II og III eru bæði í góðri stærð, með gluggum til vesturs og parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa: Bjart og opið rými með gluggum til suðurs og vesturs, parketi á gólfi og góðu rými fyrir setu- og borðaðstöðu.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað og er með baðkari m/sturtu, hvítri innréttingu undir handlaug, upphengdu salerni, opnanlegu fagi á glugga til norðurs og flísum á veggjum og gólfi.
Sameign og aðstaða:Sameign er öll hin snyrtilegasta og hefur hver íbúð tvöfaldan skáp á stigapalli við hlið íbúðar.
Sérgeymsla íbúðar er í kjallara og er 6,3 fm.
Góð
hjólageymsla og sameiginlegt
þvottahús, þar sem hver íbúð er með sína eigin vél
Garður - er sameiginlegur Álfheimum 38-42 og eru góð leiktæki sunnan megin við húsið.
Bílastæði á lóð Álfhh.38-42 eru sameiginleg og er komin rafhleðslustöð fyrir tvær hleðslur en búið er þó að leggja grunn að fleirum.
Nágrenni -
matjurtargarðar í útleigu frá Reykjavíkurborg - Sjá nánar HÉR Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat. Heimasíða RE/MAXGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk