Sveinn Gíslason og RE/MAX kynna fjögurra herbergja 96,1 fm hæð í þríbýlishúsi að Langholtsvegi 158, 104 Reykjavík. Stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði Þróttar og íþróttaaðstöðu Ármanns og allt það sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða. Allar upplýsingar veitir Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali sveinn@remax.is sími 859-5559.Nánari lýsing:Forstofa er sameiginleg með efrihæðinni.
Stofan er björt og er með parketi á gólfi og gluggum á tvær hliðar útgengt út á rúmgóðar suður svalir þar sem gengið er niður í garð.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu og góðum borðkrók. Tengi fyrir uppþvottavél og dúkur á gólfi.
Svefnherbergin eru
þrjú talsins öll með parketi á gólfi. Hjónaherbergið er með rúmgóðum skáp sem fylgir.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og í kringum upphengt salerni og baðkar með sturtu. Fín viðarinnrétting og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Í sameign er þvottarhús sem er ekki notað af íbúa íbúðarinnar og í garði er stór
geymsluskúr sem tilheyrir eigninni en er óskráður. Hann þarfnast viðhalds.
Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.