Hilmar Arnarson, aðstoðarmaður fasteignasala og Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali ásamt RE/MAX kynna bjarta og rúmgóða 5.herbergja efri sérhæð að Ástu-sólliljugötu 1, 270 Mosfellsbæ.
Eignin er skráð 156 fm og er á 2.hæð (efstu), gengið inn um sérinngang. Aukin lofthæð (3m) er nánast í allri íbúðinni. Gólfefni íbúðarinnar eru frá Birgisson og Parki. Sérsmíðuð eldhúsinnrétting frá HTH ásamt veglegri eldhúseyju.
Búið er að koma upp heimahleðslustöð í innkeyrslu fyrir rafmagnsbílinn.Um er að ræða einstaklega fallega sérhæð á þessum vinsæla og fjölskylduvæna stað í Mosfellsbæ. Stutt í skóla og alla helstu þjónustu ásamt því að falleg útivistarsvæði eru á svæðinu og skemmtileg menning í Álafosskvosinni.
Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson, hilmar@remax.is, sími 823 - 3673Skoðaðu eignina í 3D hér. Nánari lýsing eignar:Forstofa með góðu skápaplássi og dökkum náttúrusteinflísum frá Parka á gólfi.
Geymsla: úr forstofu er gengið inn í góða geymslu um speglahurð. Parket er á gólfi.
Eldhúsið er
með sérsmíðaðri innréttingu frá HTH, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskápi í innréttingu, innbyggð uppþvottavél, vegleg og stór eldhúseyja með helluborði og háf, sérhannað niðurfellt loft yfir eldhúsi með innbyggðri lýsingu frá Lúmex og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa alrými
er mjög rúmgott og bjart, hátt er til lofts og vítt til veggja með stórum gluggum, parket á gólfi. Útgengt er út á góðar grillsvalir úr stofunni sem snúa í suðaustur.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum innbyggðum skápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III er
rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi IIII með lausum skáp úr ikea og parket á gólfi.
Baðherbergið með nýlegri innréttingu, handlaug og blöndunartæki. "Walk in" sturta með glerþiljum, hornbaðkar með nuddstútum, opnanlegur gluggi, upphengt salerni, handklæðaofn og flísalagt að hluta til með flísum frá Parka, hiti er í gólfi.
Þvottahús með glugga, nýlegri innréttingu og dökkar náttúrusteinflísar á gólfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Hilmar Arnarson, hilmar@remax.is, sími 823 - 3673, aðstoðarmaður fasteignasala.1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.