RE/MAX Ísland logo
Skráð 27. okt. 2026
Söluyfirlit

Hrólfsskálamelur 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Seltjarnarnes-170
155 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
967.097 kr./m2
Fasteignamat
136.450.000 kr.
Brunabótamat
97.860.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2009
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2314088
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
10
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, stórar yfirbyggðar svalir sem snúa í suð- austur með svalaskjóli
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX, kynnir í einkasölu:

Vandaða, bjarta og rúmgóða 155 fm endaíbúð á 1. hæð í lyftuhúsi við Hrólfsskálamel 8 á Seltjarnarnesi. Íbúðin er með gluggum á þrjá vegu. Með henni fylgja merkt bílastæði í bílageymslu og tvær sérgeymslur, önnur staðsett fyrir aftan bílastæðið.

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er íbúðin 131,1 fm, auk tveggja geymslna sem eru 12,1 fm og 11,8 fm. Heildarstærð eignarinnar er því 155 fm.

Íbúðin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu og borðstofu, eldhús, hjónaherbergi, annað svefnherbergi sem nýtt hefur verið sem sjónvarpsherbergi, baðherbergi, gestasalerni og sérþvottahús.

Vandaðar innréttingar, fallegt eikar parket og flottar flísar á gólfum. Gólfhiti, gólfsíðir gluggar, sér loftræstikerfi og innbyggð lýsing í lofti.

Smelltu á hlekkinn til að skoða íbúðina í þrívídd

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.is


Nánari lýsing
Forstofan er með fatahengi og fataskáp. Þaðan er opið inn í stofurnar og inn á svefnherbergisgang.

Stofa og borðstofa eru samliggjandi, bjartar og rúmgóðar, með aukinni lofthæð og stórum gólfsíðum gluggum. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar, yfirbyggðar svalir með svalaskjóli.

Eldhúsið er opið við borðstofuna og búið vandaðri eikarinnréttingu. Eldhúseyjan er með helluborði og býður upp á gott vinnu- og borðpláss ásamt góðu skúffurými. Við vegginn er ofn í vinnuhæð og combi-ofn þar fyrir ofan. Uppþvottavélin er innbyggð og gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingunni. Þar eru einnig skolvaskur og efri og neðri skápar með innbyggðri lýsingu. Í eldhúsinu er bjartur og góður borðkrókur.

Úr eldhúsinu er rennihurð inn í rúmgott herbergi sem nýtt hefur verið sem sjónvarpsstofa. Einnig er gengið inn í það af gangi frá forstofu. 

Hjónaherbergið er rúmgott og með fataskápum. Baðherbergið er flísalagt á gólfi og veggjum og þar er baðkar, sér sturta með sturtugleri, handklæðaofn og innrétting með handlaug og góðu skápaplássi. Þar eru jafnframt upphengt salerni, upphengdir baðskápar og opnanlegur gluggi.

Gestasalernið er einnig flísalagt og með handlaug, innréttingu, spegli með lýsingu, handklæðaofni og upphengdu salerni.

Sér þvottahús er með flísalagt gólf og með borðplötu og skolvaski, hillum, skáp og tengingum fyrir þvottavél og þurrkara.

Íbúðin er með innbyggðri lýsingu og gólfhita. Fallegt eikarparket er á gólfum íbúðarinnar að undanskildum votrýmum (baðherbergi, gestasnyrtingu og þvottahúsi) þar eru flísar. Innréttingar, hurðir og skápar eru úr eik.

Staðsetningin er afar góð, með skóla, sundlaug, heilsurækt, verslanir og aðra þjónustu í næsta nágrenni. Stutt er einnig í fallegt útivistarsvæði og golfvöll.

Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 661- 6056 / gulli@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.
 
Byggt 2009
Fasteignanúmer
2314088
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
50
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.260.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Hrólfsskálamelur 12
170 Seltjarnarnes
152,9 m2
Fjölbýlishús
423
1.033 þ.kr./m2
157.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Garðsstaðir 5
112 Reykjavík
178,4 m2
Raðhús á einni hæð
413
801 þ.kr./m2
142.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Miðbraut 24
170 Seltjarnarnes
197,9 m2
Þríbýli
523
752 þ.kr./m2
148.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Hraunbær 7
110 Reykjavík
165,3 m2
Raðhús á einni hæð
614
822 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin