Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir í einkasölu:
Vel skipulögð og vönduð 153 fm, 4ra herbergja íbúð á 5. hæð. Íbúðin skiptist í rúmgott alrými, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og sér þvottahús. Sérgeymsla í sameign fylgir eigninni, samtals 32,4 fm, auk þess sem tvö bílastæði í bílakjallara fylgja eigninni.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is
Nánar um eign íb. 501 á Hringbraut 120: Eignin er fjögurra herbergja íbúð á 5. hæð (efsta hæð) merkt 01-0501, birt stærð 153 fm. Eigninni tilheyrir geymsla í kjallara 32,4 fm. Eigninni tilheyra svalir/verönd merktar 0510 og 0519. Birt heildarstærð séreignar er 162,7 fm. Svalir/verönd á þessari endaíbúð er stór og góð, snýr vel á móti sól. Búið er að koma fyrir heitum pott á svölunum.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi I: Gott svefnherbergi með fataskáp.
Svefnherbergi II: Gott svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi með Walk-in sturtu, flísum á gólfi og á hluta af veggjum. Handklæðaofn, upphengt salerni, baðinnrétting með handlaug og spegil.
Stofa, borðstofa og eldhús er opnu og björtu alrými með gólfsíða glugga, útsýni og útgengi út á svalir sem snúa í vestur.
Eldhús er með vandaða innréttingu, gott skápa- og skúffu pláss, undirlímdur vaskur, bökunarofn í vinnuhæð, helluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur með frystir.
Hjónasvíta er rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum og innbyggðum fataskápum. Sér baðherbergi er inn af Hjónasvítu.
Sér þvottahús er með flísum á gólfi, tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvask og efri skápa.
Íbúðirnar umlykja flestar fallegan inngarð þar sem líf og samfélag rennur saman og skapar nánd milli íbúa. Í hverju skrefi var hugað að þægindum, notagildi og stíl sem fellur vel að umhverfi við Sjávarsíðuna.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef um lögaðila er að ræða) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-