RE/MAX & Bjarný Björg Arnórsdóttir Lgf kynnir í einkasölu Hvassaleiti 58 íbúð nr 403, bjarta og rúmgóða 2 herbergja íbúð á 4. Hæð með svölum í húsi fyrir eldri borgara ( VR blokkin fyrir 63 og eldri). Íbúðin er skráð 77,8 fm samkvæmt HMS.
Í húsinu er boðið er uppá ýmsa þjónustu og afþreyingu fyrir íbúa hússins, m.a. matsalur, hárgreiðslustofa, fótaaðgerðastofa, föndurstofa og leikfimisalur. Hægt er kaupa heitan mat í hádeginu. Vel staðsett íbúð í göngufæri við m.a. Kringluna og alla þjónustu.
Nánari upplýsingar gefur :
Bjarný Björg Arnórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 / bjarny@remax.is Eignin skiptist í opna forstofu, baðherbergi, stofu og borðstofu, eldhús og gott svefnherbergi. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni með tækjum. Tvær góðar geymslur, ein á hæðinni og önnur stærri í kjallara.
Nánari lýsing:Forstofa: Komið er inn í forstofu með parketi og fataskáp.
Stofa og borðstofa: bjart opið rými, parket á gólfi og útgengt á rúmgóðar svalir.
Eldhúsið: er með góðri hvítri innréttingu og parket á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt, innrétting og sturta sem gengið er inní.
Svefnherbergið: er með parket á gólfi og góðum fataskápum.
Þvottahús: er sameiginlegt á hæðinni með tækjum.
Geymslur:
Tvær góðar geymslur, ein á hæðinni 4 fm, geymsla í kjallara 8,3 fm.
Íbúðin er sérlega björt og rúmgóð. Húsið hefur fengið jafnt og gott viðhald í gegnum árin og er nýlega búið að mála það að utan og skipta um teppi á stigagangi. Innifalið í húsfélagsgjaldi er þrif á sameign, umhirða á lóð, allt rafmagn í sameign, allur hitakostnaður, húseigendatrygging og framkvæmdasjóður. Íbúðin er laus til afhendingar.
Á jarðhæð hússins er félagsmiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar og þar er boðið uppá ýmsa þjónustu t.d. heitan mat í hádeginu og miðdegiskaffi í stórum og björtum matsal. Á hæðinni er vinnustofa, hárgreiðslu,- og fótaaðgerðarstofa. Í félagsmiðstöðinnu er boðið uppá fjölbreytt félags- og tómstundastarf auk fjölda námskeiða. Auk þess er æfingasalur, búningsklefar og sturtur á hæðinni.
** Félagsstarf Hvassaleiti 56-58 **Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.