RE/MAX Ísland logo
Opið hús:08. feb. kl 13:30-14:30
Skráð 3. feb. 2026
Söluyfirlit

Skógarás 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
87.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.900.000 kr.
Fermetraverð
787.429 kr./m2
Fasteignamat
65.500.000 kr.
Brunabótamat
42.550.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1986
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2046636
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt.
Raflagnir
Upprunalegt.
Frárennslislagnir
Upprunalegt.
Gluggar / Gler
Þakgluggar endurnýjaðir 2018. Verið skipt um rúður og lista í húsinu eftir þörfum. Hliðar teknar á mismunandi tíma á undanförnum tíu árum.
Þak
Þakjárn endurnýjað 2018, ekki á skyggni yfir anddyri.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
V-svalir.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. íbúð á 2. hæð að Skógarás 2 í Reykjavík. Virkilega hugguleg eign með fallegu útsýni af svölum í vesturátt. Göngufæri er í leik- og grunnskóla. Einnig í sundlaug, íþróttamiðstöð Fylkis, líkamsræktarstöð og matvöruverslun. Heilmikið útivistarsvæði er annars vegar við Rauðavatn og hins vegar í Elliðaárdalnum og Víðidalnum.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 


Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, tvö herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 87,5 m2.

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

*VINSAMLEGA SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Í OPIÐ HÚS SUNNUD. 8. FEBRÚAR
 
Söluyfirlit má nálgast hér
Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn af snyrtilegri sameign. Innan íbúðar er parketlagt gólf og hvítur fataskápur með spegli fyrir yfirhafnir.
Gangur er með hvítum fataskápum með rennihurð og veggfestum skápaeiningum. Parket á gólfi flæðir um flest rými íbúðar og án þröskulda.
Stofa er með útgengi út á rúmgóðar svalir til vesturs. Fallegt útsýni yfir í skógivaxna hlíð í Víðidalnum. Parket á gólfi stofu.
Eldhús er inn af stofurými og hefur hurðargta þar verið stækkað. Eldhús var gert upp árið 2016. Hvít innrétting frá HTH er á tveimur veggjum. Bosch ofn og AEG helluborð með gufugleypi fyrir ofan í efri skápum. Í innréttingu er Innbyggð eldri uppþvottavél. Á öðrum langveggnum er borðplata sem hægt er að sitja við. Dökkar korkflísar á gólfi.
Þvottahús og geymsla er inn af eldhúsi. Hvít innrétting með stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gott borðpláss og nægt hillupláss. Niðurfall í gólfi og málað gólf.
Baðherbergi er með baðkari með sturtu, hvítri skúffueiningu undir handlaug og veggfestum speglaskáp með ljósi. Baðherbergið er það stórt að möguleiki er að setja upp sturtu og fleiri skápa. Ljósar gólfflísar og niðurfall undir vaski. Gráar flísar eru á hluta veggja.
Herbergi I er stórt með hvítum fataskápum sem fylla einn vegg. Parket á gólfi.
Herbergi II er nýtt sem barnaherbergi. Parket á gólfi.
Hjóla- og vagnageymsla er beint inn af stétt við inngang inn í hús.
Garður er gróinn. Aftan við hús til vesturs er stór grasflötur og framan við hús eru hellulagðar stéttar (með snjóbræðslu) í beinu framhaldi af malbikuðu bílaplani.

Að sögn fyrri eiganda var parket lagt árið 2021, eldhús gert upp árið 2016 og ný gler í svefnherbergin 2015. Núverandi eigandi endurnýjaði blöndunartæki í sturtu og speglaskáp árið 2025.
Í sameign var skipt um staura við inngang í Skógarás 2 og 6, ný teppi lögð í stigagang og hann málaður 2021. Einnig var myndavéladyrasími settur upp 2019, ofnar í sameign yfirfarðir 2018 og þá var einnig þak endurnýjað (járn, pappi og þaktúður) og nýir þakgluggar settir í. Árið 2017 var snjóbræðsla sett í stétt framan við inngang. Einnig eru nokkur ár síðan skipt var um það sem þurfti í þakskeggi og málað. Gluggalista og rúður hefur verið skipt um að hluta í gegnum árin eftir þörfum skv. upplýsingum frá húsfélagi og húsið klætt með auka einangrun árið 1992.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Helluvað 9
110 Reykjavík
87.2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
802 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Rökkvatjörn 1
113 Reykjavík
70.9 m2
Fjölbýlishús
211
958 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Opna eign
Opið hús:02. maí kl 18:00-18:30
Image
Opna eign
Rauðalækur 40
105 Reykjavík
86.1 m2
Fjórbýli
312
812 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Stefnisvogur 3
104 Reykjavík
80.8 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
865 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin