Erling Proppé & Remax kynna: Tveggja íbúða parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr og stórum garði á frábærum stað við Leiðhamra 5, Grafarvogi.
Húsið er í dag innréttað sem tvær 3ja herbergja íbúðir á sitt hvorri hæðinni og svo er bílskúrinn að auki. Auðvelt væri að breyta því tilbaka í eitt íbúðarrými.Húsið er skráð skv. FMR. 195,1m2, neðri hæð 95m2 ásamt 22,8m2 bílskúr. Efri hæðin sem er talsvert undir súð er skráð 77,3m2 og því er nýtanlegur gólfflötur þar talsvert meiri.
** Fasteignamat næsta árs er kr. 133.800.000,- **Nánari lýsing:Anddyri: Nýlega uppgert anddyri með fallegum stórum skápum, bekkur með skúffum og fallegum spegli. Flísar á gólfi og gólfhiti.
Þvottahús: Er inn af anddyri, nýleg innrétting, gott borð- og skápaplass, gólfhiti og gluggi.
Íbúð á neðri hæð: Gengið er inn í íbúð til vinstri úr anddyri.
Eldhús: Hvít U-innrétting með viðarborðplötu, bakaraofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, keramik-helluborð, gluggar á tvo vegu og góður borðkrókur.
Stofa: Rúmgóð björt stofa, útgengt út í garð um nýlega viðbyggingu undir svölum með gólfhita sem á eftir að klára.
Herbergi I: Rúmgott herbergi með góðum skápum
Herbergi II: Rúmgott herbergi
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu, handklæðaofn, innrétting, gólfhiti og gluggi.
Íbúð á efri hæð:Gengið er inn í íbúð upp fallegan flísalagðan stiga til hægri úr anddyri.
Alrými: Stórt alrými tengir efri hæðina saman.
Borðstofa: Góð borðstofa með tveimur þakgluggum, auðvelt væri að bæta hér við herbergi.
Sjónvarpsstofa: Rúmgóð, útgengt út á stórar sólríkar svalir. Eigninni fylgir ný stór renni svalarhurð og galvaniseraður hringstigi hugsaður af svölum niður í garð.
Eldhús: Er nýlega uppgert, falleg hvít innrétting, spanhelluborð, bakaraofn í vinnuhæð, granít á borðum, tvennir þakgluggar.
Baðherbergi: Flísalagt, innrétting, þakgluggi, baðkar og sturtuklefi.
Herbergi I: Er mjög rúmgott með skápum, aðgengi um lúgu upp á kalt geymsluloft.
Herbergi II: Er mjög rúmgott.
Falleg aðkoma að húsinu, hellulagt bílaplan með snjóbræðslu að hluta til. Nýlegur skjólveggur með fallegri lýsingu umhverfis húsið með stóru og góðu tvöföldu hliði út á bílaplan, blómabeð úr fallegum hleðslusteini, búið er að efnisskipta allri lóðinni og koma fyrir flottum rafmagnsheitapotti.
Framkvæmdir: Nýlega uppsettur skjólveggur umhverfis lóðina með fallegri lýsingu. 2024
Hlaðið blómabeð við hlið hans. 2024
Öll lóðin er nýlega efnisskipt. 2024
Rafmagnspottur uppsettur, efnisskipt og hellulagt undir potti með rafmagnstenginu. 2024
Viðbygging undir svölum með gólfhita, á eftir að klára. 2025
Eldhús á efri hæð endurnýjað 2021
Forstofa endurnýjuð 2022
Stigi endurnýjaður 2023
Verið er að mála þakið 2025 Eigninni fylgir:Stór rennihurð - óuppsett.
Galvaniseraður hringstigi sem er hugsaður á svalir og niður í garð - óuppsettur.
Flottur grohe vaskur sem var hugsaður á nýja borðplötu í eldhúsi á neðri hæð - óuppsettur.
Niðurlag: Um er að ræða frábært tækifæri til að eignast sérbýli með tveimur 3ja herbergja íbúðum á frábærum stað í Hamrahverfinu, Grafarvogi. Hamrahverfið er lítið lokað hverfi með einum inngangi, stutt í skóla og leiksskóla ásamt allri helstu þjónustu. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignin er seld í því ástandi sem hún er og því bendum við væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun, fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.